Tónlist

Valli Sport tók viðtöl við fjörutíu konur og notar orð þeirra í lagi með Þórunni Antoníu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Valli og Þórunn frumflytja lagið á þriðjudaginn.
Valli og Þórunn frumflytja lagið á þriðjudaginn.
Þórunn Antonía og Valgeir Magnússon, betur þekktur sem Valli Sport, gefa út lagið Ofurkona á næstu dögum.

„Við vildum gera svona lag með öllum konunum sem ég tók viðtal við og öðrum sem komu að verkefninu. Líklega hafa ekki mörg lög orðið til þar sem svona margir eru þátttakendur í ferlinu,” segir Valli

Við gerð textans tók Valgeir viðtöl við um fjörutíu konur til að reyna að skilja hvernig er að vera kona. Hann notaði svo orð kvennanna í textagerðina en ekki sín eigin. Valgeir og Þórunn hafa boðið öllum þessum konum og fleirum sem komu að verkefninu til hádegisverðar þar sem þau munu öll hlusta á lagið áður en það kemur út.

„Ég sá fljótlega stef í þessum viðtölum sem tengdist pressunni sem konur setja á sig sjálfar og finnast þær frá kynsystrum sínum um að vera fullkomnar. Einnig er mikið af óþolandi frösum í umhverfinu sem er ætlað að nýta þessa pressu sem konur setja á sig eins og „vertu besta útgáfan af sjálfri þér” eða þá um hvernig þær geti orðið betri mæður sem í leiðinni þýðir að ef þær fari ekki eftir ráðinu þá séu þær verri mæður.”

Lagið mun svo koma út í næstu viku á Spotify og fleiri tónistarveitum. Lagið verður frumflutt fyrir almenning næsta þriðjudag kl. 11:00 hjá Ívari Guðmundssyni á Bylgjunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×