Tónlist

„Ég er listamaður, ég er ekki félagsráðgjafi“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Auður var á meðal þeirra tónlistarmanna sem tróðu upp á tónleikum Bylgjunnar á Menningarnótt í sumar.
Auður var á meðal þeirra tónlistarmanna sem tróðu upp á tónleikum Bylgjunnar á Menningarnótt í sumar. vísir/daníel þór
Ein skærasta stjarna íslenskrar tónlistar um þessar mundir, Auður, segir að honum sé alveg sama um gagnrýni frá fólki sem hann þekki ekki. Það hafi ekkert vægi fyrir honum en það sé hins vegar erfitt þegar fólk sem honum þykir vænt um er ósammála því sem hann er að gera.

Þá segir hann að það sé einnig mjög skrýtið að vera allt í einu orðinn nokkurs konar „poster boy“ fyrir það að mæta inn á geðdeild og að reykja gras og vera einhvern veginn skilgreindur út frá því. Það hafi ekki alveg verið planið.

Auður er listamannsnafn Auðuns Lútherssonar en rætt er við hann í þættinum Rabbabara á RÚV Núll í dag. Um er að ræða fyrsta viðtalið sem Auðunn veitir í um eitt og hálft ár og segir Auðunn meðal annars frá því hvers vegna hann fór út í tónlist og upphaf ferilsins.

Fyrsta platan kom út í upphafi árs 2017 og heitir Alone en það má segja að platan Afsakanir, sem kom út í fyrra, hafi skotið Auðuni upp á stjörnuhimininn. Platan sló í gegn og var meðal annars valin besta platan á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár í flokknum raftónlist.

Óhætt er að segja að Auður sé ein skærasta íslenskrar tónlistar í dag en hann sló í gegn í fyrra með plötunni Afsakanir.vísir/daníel þór

Finnst skrýtið að setja sig í þá stöðu að gefa ráð

Þemu plötunnar eru þung, til dæmis sjálfsvíg, ástvinamissir og glíman við geðsjúkdóma. Auðunn segir að það fylgi því ákveðin ábyrgð að opna sig á þann hátt sem hann gerir á plötunni því fólk vill opna sig á móti við hann.

„Og einhvern veginn þegar ég er búinn að gera eitthvað svona svolítið „publicly“ þá heldur fólk að það geti gert það til mín og það er oft svolítil ábyrgð í því því að þetta eru þung þemu eins og sjálfsvíg, að missa einhvern og að glíma við geðræna sjúkdóma. Það er rosalega skrýtið að vera allt í einu orðinn einhver „poster boy“ fyrir það að mæta inn á geðdeild og vera að reykja „weed“ og vera einhvern veginn skilgreindur út frá því. Það var ekki alveg planið,“ segir Auðunn.

Þá segir hann að það sé líka dálítið erfitt þegar fólk kemur til hans og leitar ráða og vill jafnvel fá hann til að ræða um geðheilbrigði í framhaldsskólum.

„Hvað á ég að segja? Mér finnst ógeðslega skrýtið að fara að setja mig í þá stöðu að gefa ráð. Ég er bara einhver gaur, skilurðu, og ég er bara frekar góður að gera tónlist. Það þýðir ekki að ég viti eitthvað í minn haus.“

Trúir því að listamaðurinn megi segja sína sögu

Þetta geti verið yfirþyrmandi tilfinning.

„Þetta var rosa intense. Margir gefa sér að ég sé með einhverja ábyrgð en þetta er ekki mín ábyrgð. Ég er listamaður, ég er ekki félagsráðgjafi og ég væri mjög lélegur félagsráðgjafi því ég væri bara eitthvað að grípa í gítar og söngla eitthvað. Það er bara mitt að segja mína sögu og það er það sem mig langar að gera,“ segir Auðunn.

Þrátt fyrir að plötunni hafi verið vel tekið hefur Auðunn þó líka fengið sinn skerf af gagnrýni, meðal annars vegna þess að eiturlyfjaneysla er eitt af umfjöllunarefnum plötunnar. Þannig vakti það töluverða athygli síðsumars þegar Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, gagnrýndi lagið hans „Freðinn“ og sagði listamanninn upphefja eiturlyfjaneyslu.



Klippa: Auður - Freðinn


Spurður út í gagnrýni og hvað honum finnist um  hana segir Auðunn:

„Ég get bara sagt mína sögu. Það er bara rosalega skrýtið að vera að stjórna einhverri „narratívu“ á sögu sem er ekki bara mín en á sama tíma er það það eina sem ég hef í höndunum. Ég trúi því að listamaðurinn megi segja sína sögu. Mér er alveg sama um skoðanir fólks sem ég þekki ekki og það er bara internetið og eitthvað sem hefur ekkert vægi fyrir mér. Það sem er erfitt er þegar maður er með fólk sem manni þykir vænt, þegar þær manneskjur eru ósammála því sem maður er að gera. Það er erfitt.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum ofar í fréttinni. Hér fyrir neðan má sjá myndina Afsakanir, sem fylgdi útgáfu plötunnar í fyrra.



Klippa: AUÐUR - AFSAKANIR

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×