Enski boltinn

Líkti Boris við Guardiola en Lineker var fljótur til: „Væri búið að reka Guardiola með sömu úrslit“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Guardiola og Boris. Myndin er samsett.
Guardiola og Boris. Myndin er samsett. vísir/getty
Breski stjórnmálamaðurinn, Michael Gove, segir að forsætisráðherra Bretlands, Boris Johnson, sé fæddur sigurvegari og hann sé eins og Pep Guardiola.

Ummælin lét Gove falla í samtali við LBC fjölmiðilinn sem fer mikinn í stjórnmálaumræðunni á Bretlandi en Gove er meðal annars fyrrum umhverfisráðherra Bretlands.

Sjónvarpsmaðurinn Gary Lineker var ekki hrifinn af líkingunni og segir að ef Guardiola hefði átt svipuðu gengi að fagna og Boris þá væri einfaldlega búið að reka hann.







Prófessorinn Matthias Eberl blandar sér einnig í umræðuna og segir að það sé ekki hægt að bera Boris og Guardiola. Hann setti svo fram nokkrar staðreyndir.







Boris hefur verið mikið í umræðunni á Englandi undanfarnar vikur. Hann vildi meðal annars fresta þingi í fimm vikur í aðdraganda útgönug Bretlands úr Evrópusambandinu í október en mikið hefur gengið á Bretlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×