Íslenski boltinn

Gary Martin skoraði tvö mörk í Garðabænum og nældi í gullskóinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gary Martin skoraði 14 mörk í aðeins 15 leikjum í Pepsi Max-deildinni í sumar.
Gary Martin skoraði 14 mörk í aðeins 15 leikjum í Pepsi Max-deildinni í sumar. mynd/stöð 2 sport
Gary Martin varð markahæsti leikmaður Pepsi Max-deildar karla 2019. Enski framherjinn tryggði sér gullskóinn með því að skora tvö mörk þegar ÍBV tapaði 3-2 fyrir Stjörnunni í lokaumferðinni í dag.

Gary skoraði alls 14 mörk í sumar, tólf fyrir ÍBV og tvö fyrir Val, í aðeins 15 leikjum. Hann varð einnig markakóngur Pepsi-deildarinnar fyrir fimm árum þegar hann lék með KR. Gary fékk silfurskóinn 2013.

Steven Lennon (FH), Thomas Mikkelsen (Breiðabliki), Elfar Árni Aðalsteinsson (KA) og Hilmar Árni Halldórsson (Stjörnunni) skoruðu allir 13 mörk.

Lennon spilaði fæsta leiki af þessum fjórum leikmönnum og fékk því silfurskóinn. Mikkelsen fékk bronsskóinn þar sem hann lék færri mínútur en Elfar Árni og Hilmar Árni.

Elfar Árni skoraði þrennu í 4-2 sigri KA á Fylki í dag. Lennon og Mikkelsen voru einnig á skotskónum í dag.

Hilmar Árni komst ekki á blað í dag. Hann var markahæstur fyrir lokaumferðina en endaði í 5. sæti markalistans.


Tengdar fréttir

Leik lokið: Breiðablik - KR 1-2 | KR-ingar jöfnuðu stigametið

Íslandsmeistarar KR unnu 1-2 sigur á Breiðabliki í lokaumferð Pepsi Max-deildar karla. Leikurinn var sá allra rólegasti en KR-ingar gerðu út um hann með tveimur mörkum með tveggja mínútna millibili í fyrri hálfleik, mörk þeirra gerðu Kennie Chopart og Kristján Flóki Finnbogason. Það skipti litlu þó að Thomas Mikkelsen hafi skorað úr vítaspyrnu undir lok leiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×