Bíó og sjónvarp

Hvítur hvítur dagur seld til yfir 30 landa

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ingvar E. Sigurðsson fer með aðalhlutverkið í myndinni.
Ingvar E. Sigurðsson fer með aðalhlutverkið í myndinni.
Kvikmyndin Hvítur hvítur dagur hefur verið seld til yfir 30 landa - þar á meðal til Svíþjóðar, Danmerkur, Noregs, Frakklands, Sviss, Bretlands, Spánar, Póllands, Ástralíu, Nýja-Sjálands, Ungverjalands, Þýskalands, Austurríkis, Kína, Grikklands, Tékklands, Slóvakíu, Írlands, Rússlands, Belgíu, Hollands, Lúxemborg, Eistlands, Lettlands, Litháen, Bosníu- og Hersegóvínu, Króatíu, Norður-Makedóníu, Svartfjallalands, Serbíu og Slóveníu.

Nú síðast bættust við sölur til Bandaríkjanna og Kanada en myndin á Norður-Ameríku frumsýningu á hinni virtu Toronto kvikmyndahátíð þann 9. september næstkomandi. Alþjóðlegt sölufyrirtæki myndarinnar er New Europe Film Sales en Film Movement mun sjá um dreifingu myndarinnar í Bandaríkjunum.

Klippa: Hvítur, hvítur dagur - sýnishorn


Hlynur Pálmason leikstýrir og skrifar handritið að Hvítum, hvítum degi.  Framleiðandi myndarinnar er Anton Máni Svansson fyrir Join Motion Pictures og einn af yfirframleiðendum er Guðmundur Arnar Guðmundsson, en myndin er íslensk/dönsk/sænsk samframleiðsla. Hvítur hvítur dagur er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs og er í forvali til evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í ár.

Kvikmyndin segir frá Ingimundi sem er lögreglustjóri sem hefur verið í starfsleyfi frá því að eiginkona hans lést óvænt af slysförum. Í sorginni einbeitir hann sér að því að byggja hús fyrir dóttur sína og afastelpu, þar til athygli hans beinist að manni sem hann grunar að hafi átt í ástarsambandi við konu sína. Fljótlega breytist grunur Ingimundar í þráhyggju og leiðir hann til róttækra gjörða sem óhjákvæmilega bitnar einnig á þeim sem standa honum næst. Þetta er saga um sorg, hefnd og skilyrðislausa ást.

Helstu leikarar eru þau Ingvar E. Sigurðsson, Ída Mekkín Hlynsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Arnmundur Ernst Backman, Björn Ingi Hilmarsson, Elma Stefanía Ágústsdóttir, Haraldur Ari Stefánsson, Laufey Elíasdóttir, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Sverrir Þór Sverrisson, Þór Tulinius.

Myndin var forsýnd í Háskólabíó í gærkvöldi og verður frumsýnd í kvikmyndahúsum Senu á föstudag.


Tengdar fréttir

Myndin verður sýnd í Hornafirði

Kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur mun verða sýnd á Hornafirði þrátt fyrir að bæjarráð hafi synjað ósk um styrk vegna sýningarbúnaðar.

Hlynur skynjaði að Ingimundur býr í mér

Kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn Pálmason hefur notið mikillar velgengni á kvikmyndahátíðum eftir að hún var heimsfrumsýnd í Cannes og Ingvar E. Sigurðsson verið valinn besti karlleikarinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×