Sport

Alexandrea setti Íslandsmet og fékk bronsverðlaun á HM

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Alexandrea á verðlaunapallinum
Alexandrea á verðlaunapallinum mynd/kraft.is
Alexandrea Rán Guðnýjardóttir vann til bronsverðlauna á HM í bekkpressu sem fram fer í Tókýó í Japan.

Alexandrea Rán keppir í -57kg flokki unglinga í klassískri bekkpressu.

Hún lyfti 72,5 kg í annari lyftu í dag og bætti sinn eigin árangur og Íslandsmetið um 2,5 kg. Í þriðju lyftu setti hún 75kg á stöngina og þau fóru upp.

Það dugði til bronsverðlauna og nýs Íslandsmets í greininni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×