Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Aron Guðmundsson skrifar 29. september 2026 21:39 Abby Beeman í leik með Grindavík. vísir / anton Þrír leikir fóru fram í fyrstu umferð Bónus deildar kvenna í kvöld. KR hóf tímabilið á sigri gegn Stjörnunni, í Síkinu lagði Tindastóll lið Keflavíkur og þá vann Grindavík stórsigur gegn Ármanni í Laugardalshöllinni.
Sigur Grindavíkur í kvöld var í raun aldrei í hættu. Liðið tók snemma forystuna og leiddi með fjórum stigum eftir fyrsta leikhlutann. Jafnt og þétt bætti liðið við forystu sínu og fór að lokum með 39 stiga sigur af hólmi, 104-65. Abby Beeman var stigahæst í liði Grindavíkur með 29 stig, þá gaf hún einnig flestar stoðsendingar alls þrettán talsins. Hjá Ármenningum var það Edyta Ewa Falenzcyk sem var stigahæst með alls 22 stig. Frábær byrjun á tímabilinu hjá liði Grindavíkur sem mikið hefur verið í lagt fyrir tímabilið. Grindavík mætir næst Haukum á heimavelli á meðan að Ármann heimsækir Stjörnuna. Í Síkinu á Sauðárkróki tóku heimakonur í liði Tindastóls á móti Keflavík. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og sannast það best í hálfleikstölum leiksins, 40-40. En strax í þriðja leikhluta. Þar byggðu heimakonur upp tíu stiga forskot sem þær létu aldrei af hendi. Aðeins átján stig frá Keflavík í seinni hálfleik sáu til þess að Tindastóll fór með fimmtán stiga sigur af hólmi, 73-58. Quinzia Jamecia Fulmore var stigahæst í liði Tindastóls með 18 stig. Þá tók hún 10 fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Kolbrún María Ármannsdóttir var einnig öflug í endurkomu sinni í efstu deild hér á landi. Hún setti niður 13 stig, tók átta fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Keflavík á alvöru prófraun fyrir höndum í næstu umferð þegar liðið heimsækir ríkjandi Íslandsmeistara Njarðvíkur í grannaslag. Tindastóll heimsækir nýliða Fjölnis.
Bónus-deild kvenna Grindavík Tindastóll Keflavík ÍF Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira