Tónlist

Daði Freyr og Blær gefa út myndband við nýtt lag

Gígja Hilmarsdóttir skrifar
Myndbandið kom út í dag.
Myndbandið kom út í dag. Youtube
Söngvarinn Daði Freyr Pétursson gaf í dag út myndband við nýjasta lag sitt, Endurtaka mig.

Myndbandið vann Daði ásamt eiginkonu sinni Árnýju Fjólu Ásmundsdóttur úti í Berlín þar sem þau búa. Lagið samdi hann í samstarfi við rapparann Þuríði Blævi Jóhannsdóttur.

„Við unnum lagið og myndbandið í gegnum netið, Blær fékk Sölku Valsdóttur til að taka upp hennar söng og Guðmund Felixson til að taka upp myndbandspartinn hennar,“ segir Daði í samtali við Vísi.

Endurtaka mig er lokalagið á nýjustu plötu söngvarans sem kemur út í maí.

„Lagið fjallar um að þurfa ekki að halda áfram að gera það sem maður hefur gert áður, að maður geti alltaf breytt um stefnu þegar manni sýnist og ætti ekki að vera gagnrýndur fyrir það,“ segir Daði.

Blær, eins og hún er gjarnan kölluð, tekur í sama streng og segir mikilvægt að festast ekki í sömu rútínunni í listsköpun jafnt sem lífinu.

Blær, sem er meðlimur hljómsveitarinnar Reykjavíkurdætur, segir það hafa verið áskorun fyrir sig að koma fram sem Blær en ekki með Reykjavíkurdætur sér við hlið. 

„Þegar maður er búinn að vera í tólf manna hljómsveit þar sem öll gagnrýni dreifist á svo margar er stressandi að vera „featured“ með einum öðrum. Þetta var þó skemmtilegt og spennandi verkefni,“ segir Blær.

Mikið er á döfinni hjá þeim Daða og Blævi. Daði og Árný eiga von á barni sem gæti allt eins komið í heiminn í dag eða á næstu dögum. Þá frumsýnir Blær leikritið, Kæru Jelenu, í Borgarleikhúsinu um helgina.


Tengdar fréttir

Daði Freyr tók Sting fyrir sjónvarpsþátt sem ekki varð

Das Supertalent sem er Þýskaland Got talent hafði samband við Daða fyrir nokkru og vildu þeir fá hann sem keppanda í þáttinn. Daði ákvað að slá til og gerði ábreiðu af laginu Shape of my heart með Sting og sendi þeim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×