Enski boltinn

Kane frá út tímabilið?

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kane liggur óvígur eftir í kvöld.
Kane liggur óvígur eftir í kvöld. vísir/getty
Harry Kane fór meiddur af velli er Tottenham vann 1-0 sigur á Manchester City í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Kane fór af velli eftir að hafa lent í harkalegu samstuði við samherja sinn úr enska landsliðinu, Fabian Delph, en Kane haltraði strax til búningsherbergja.







Í samtali við fjölmiðla í leikslok sagði Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham að það gæti verið að Kane sjáist ekki aftur á vellinum með Tottenham á þessari leiktíð.

„Þetta er mjög, mjög sárt. Þetta verður erfitt og við munum sakna hans, mögulega út leiktíðina,“ sagði Pochettino í samtali við BT Sport í leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×