Tónlist

Ís­lensku tón­listar­verð­launin: GDRN hlaut fern verð­laun

Atli Ísleifsson skrifar
Plata GDRN, Hvað ef, var valin poppplata ársins.
Plata GDRN, Hvað ef, var valin poppplata ársins. Íslensku tónlistarverðlaunin
GDRN hlaut fern verðlaun þegar Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í Silfurbergi í Hörpu fyrr í kvöld.

Ásamt GDRN fengu Víkingur Heiðar, Auður, Karl Olgeirsson, Valdimar, Jónas Sig, JóiPé og Króli flest verðlaun. Þá fékk Jón Ásgeirsson sérstök heiðursverðlaun á athöfninni.

Í tilkynningu kemur fram kvöldið hafi verið GDRN, eða Guðrúnar Ýrar Eyfjörð Jóhannesdóttur eins og hún heitir fullu nafni.

„Plata GDRN, Hvað ef var valin poppplata ársins en hér er á ferðinni einstaklega frambærileg frumraun þar sem allt smellur saman, frábærar lagasmíðar og áhugaverðir textar. Lagið Lætur mig sem hún syngur með Flóna og samið með ra:tiovar valið popplag ársins og Guðrún Ýr var kosin söngkona ársins í flokki popp, rokk, raf- og hiphopptónlistar. Að endingu fékk GDRN verðlaun fyrir myndband ársins við lagið Lætur mig en myndbandinu er leikstýrt af Ágústi Elí Ásgeirssyni, segir í tilkynningu.



Að neðan má sjá lista yfir alla verðlaunahafa.

Opinn Flokkur / Þjóðlagatónlist / Kvikmynda- og leikhústónlist

Útgáfa ársins - Kvikmynda- og leikhústónlist 

Davíð Þór Jónsson - Kona fer í stríð

Plata ársins - Opinn flokkur

Gyða Valtýsdóttir - Evolution

Plata ársins - Þjóðlagatónist 

Umbra - Sólhvörf

Lag/tónverk ársins opinn flokkur / Þjóðlagatónlist / Kvikmynda- og leikhústónlist 

Arnór Dan, Stone by stone

Plötuumslag ársins 

Jónas Sig. - Milda hjartað 

Hönnun: Ámundi Sigurðsson 

Ljósmyndir: Jónatan Grétarsson 

Upptökustjórn ársins

Ómar Guðjónsson fyrir Milda hjartað - Jónas Sig



Rokk, popp, raftónlist, rapp og hiphopp

Plata ársins - Popp: 

GDRN - Hvað ef 

Plata ársins - Rokk: 

Valdimar - Sitt sýnist hverjum 

Plata ársins - Rapp/Hiphopp: 

JóiPé & Króli - Afsakið hlé 

Plata ársins - Raftónlist: 

Auður - Afsakanir 

Lag ársins - Popp: 

GDRN - Lætur mig 

Lag ársins - Rokk: 

Benny Crespo's Gang - Another Little Storm 

Lag ársins - Rapp/Hiphopp: 

JóiPé & Króli - Í átt að tunglinu 

Lagahöfundur ársins 

Auðunn Lúthersson (Auður) 

Textahöfundur ársins

Svavar Pétur Eysteinsson (Prins Póló) 

Söngkona ársins 

Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir (GDRN) 

Söngvari ársins 

Valdimar Guðmundsson 

Tónlistarviðburður ársins 

Aldrei fór ég suður 

Tónlistarflytjandi ársins 

Hatari 

Bjartasta von Rásar 2 og Íslensku tónlistarverðlaunanna 

Bríet 

Tónlistarmyndband ársins 2018 - Albumm.is og Íslensku Tónlistarverðlaunin 

GDRN – Lætur mig ft. Floni & ra:tio 

Leikstjóri: Ágúst Elí

Sígild og samtímatónlist

Plata ársins - Sígild og samtímatónlist 

Johann Sebastian Bach - Víkingur Heiðar Ólafsson 

Tónverk ársins - Sígild og samtímatónlist 

Spectra - Anna Þorvalds 

Tónlistarflytjandi ársins - einstaklingar : Sígild og samtímatónlist 

Víkingur Heiðar Ólafsson 

Tónlistarflytjandi ársins - hópar : Sígild og samtímatónlist

Strokkvartettinn Siggi 

Söngvari ársins - Sígild og samtímatónlist 

Oddur Arnþór Jónsson 

Söngkona ársins - Sígild og samtímatónlist 

Hallveig Rúnarsdóttir 

Tónlistarviðburður ársins - Tónleikar : Sígild og samtímatónlist 

Brothers eftir Daníel Bjarnason - Íslenska Óperan, Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt einsöngvurum og kór Íslensku óperunnar 

Tónlistarhátíð ársins - hátíðir : Sígild og samtímatónlist 

Óperudagar í Reykjavík 

Bjartasta Vonin - Sígild og samtímatónlist 

Björk Níelsdóttir



Djass og blús

Plata ársins - Djass og blús 

Karl Olgeirsson - Mitt bláa hjarta 

Tónverk ársins - Djass og blús 

Bugða - Agnar Már Magnússon 

Lagahöfundur ársins - Djass og blús 

Karl Olgeirsson

Tónlistarflytjandi ársins - Einstaklingar : Djass og blús 

Kjartan Valdemarsson 

Tónlistarflytjandi ársins - Hópar : Djass og blús 

Stórsveit Reykjavíkur 

Tónlistarviðburðir ársins - Djass og blús 

Tónleikaraðir Jazzklúbbsins Múlans 

Bjartasta vonin - Djass og blús 

Daníel Helgason 

Heiðursverðlaun og sérstök verðlaun Samtóns og Íslensku tónlistarverðlaunanna 

Heiðursverðlaun Samtóns 

Jón Ásgeirsson


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×