Kostaði Manchester United þrjá milljarða að reka Mourinho Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. febrúar 2019 12:54 José Mourinho á fyrir salti í grautinn. vísir/getty
Manchester United borgaði José Mourinho og starfsliði hans samtals 19,6 milljónir punda eða þrjá milljarða króna í starfslokagreiðslur þegar að Portúgalinn var rekinn frá United í desember. Félagið sendi sjálft tilkynningu um þetta á breska miðla en Mourinho var látinn fara eftir 3-1 tap gegn Liverpool 16. desember og tók Ole Gunnar Solskjær við til bráðabirgða. José Mourinho tók við Manchester United sumarið 2016 og vann bæði Evrópudeildina og enska bikarinn á fyrsta tímabilinu við stjórnvölinn. Hann skilaði liðinu svo í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð áður en fór að halla undan fæti í vetur. Þegar að Mourinho var rekinn var hann búinn að safna 26 stigum í 17 leikjum. Liðið var búið að skora 19 mörk og fá á sig 19 eftir 3-1 tapið gegn Liverpool en það var í sjötta sæti, átta stigum á eftir Arsenal og ellefu stigum á eftir Chelsea sem var þá í fjórða sæti. Undir stjórn Ole Gunnar Solskjær hefur United unnið níu af tíu leikjum sínum í deildinni og safnað 28 stigum af 30 mögulegum en ekkert lið hefur innbyrt fleiri stig á sama tíma. United er búið að skora 26 mörk í leikjunum tíu og fá á sig aðeins sex og er komið í fjórða sætið, upp fyrir Chelsea en fjórða sætið er það síðasta sem gefur þátttökurétt í Meistaradeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Jökull rekinn frá Stjörnunni Íslenski boltinn Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Fleiri fréttir Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Sjá meira