Íslenski boltinn

Elfar Árni tryggði KA sigur gegn Þór og sigur í Kjarnafæðismótinu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Elfar Árni skoraði bæði mörk KA í kvöld.
Elfar Árni skoraði bæði mörk KA í kvöld. vísir/ernir
Elfar Árni Aðalsteinsson var hetja KA er liðið grannana í Þór í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins sem spilaður var í Boganum í kvöld.

Það var Inkasso-liðið, Þórsarar, sem komust yfir í Boganum í kvöld en markið skoraði Bjarki Þór Viðarsson eftir sendingu Jóhanns Helga Hannessonar á 23. mínútu.

Mikil harka var í leiknum en alls fóru sjö gul spjöld á loft en jöfnunarmarkið skoraði Elfar Árni Aðalsteinsson. Stoðsendinguna átti Hallgrímur Már Steingrímsson en markið kom á 67. mínútu.

Níu mínútum síðar kom sigurmark KA og þar var sama uppskrift; frá Húsvíkingunum. Stoðsendingina gaf Hallgrímur Már og markið skoraði Elfar Árni. Lokatölur 2-1 sigur KA.

Úrslit og markaskorarar eru fengnir frá úrslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×