„Stærsta ógn Manchester City er að þeir eru augljóslega besta lið deildarinnar“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 4. febrúar 2019 15:30 Mun Sergio Aguero lyfta Englandsmeistaratitlinum í vor? vísir/getty
Eina liðið sem ógnar því að Manchester City verði Englandsmeistari er Manchester City. Þetta segir knattspyrnusérfræðingurinn Gary Neville. Neville, sem spilaði við góðan orðstír fyrir Manchester United í fjöldamörg ár, hefur skapað sér nafn sem einn helsti sparksérfræðingur Bretlandseyja. Hann ræddi titilbaráttuna í pistli sínum á Sky Sports. Manchester City vann Arsenal örugglega 3-1 á heimavelli sínum í gær. Með því minnkaði City forskot Liverpool niður í tvö stig, en þeir rauðu eiga leik til góða í kvöld. Tottenham er tveimur stigum á eftir City en Neville hefur enga trú á að Lundúnabúarnir hrifsi titilinn. „Það var augljós gæðamunur á liðunum tveimur í gær, en City hefur undan farið átt kafla í leikjum þar sem þeir missa niður hraðann og gefa andstæðingnum trú á að þeir eigi séns. Um leið og þeir stíga aftur á bensíngjöfina og sýna hæfileikana sem þeir búa yfir þá geta þeir keyrt yfir andstæðinginn á ný,“ sagði Neville. „Stærsta ógn Manchester City er að þeir eru augljóslega besta lið deildarinnar, fyrir utan kannski Liverpool sem kemst nokkuð nálægt þeim.“ „Spurningin er hvort þeir geti náð að halda uppi hraðanum og ákefðinni eða missa einbeitinguna og gera þar með mistök. Það er stærsta ógnin.“ „Þegar við [Manchester United] unnum titla ár eftir ár þá áttum við svona kafla, þar sem við misstum stig og vorum ekki alveg með einbeitingu allan leikinn. Sir Alex Ferguson sagði þá við okkur að okkur leiddist og hann gæti ekki beðið fram í mars og apríl þegar við vöknuðum á ný. Við erum að sjá svipaða hluti hjá City núna.“ „Hættan er að stundum þegar þér leiðist þá lendir þú of langt á eftir og nærð ekki að komast fremst aftur.“ Manchester City hefur orðið Englandsmeistari þrisvar á síðustu árum, en aldrei náð að verja titilinn enn sem komið er.
Enski boltinn Mest lesið Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira