Man. City getur unnið titil á sama degi og Liverpool mætir Man. United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. febrúar 2019 09:30 Pep Guardiola hefur unnið þrjá titla á Englandi og getur bætt þeim fjórða við seinna í þessum mánuði. Hér er Pep Guardiola með Khaldoon Al Mubarak, stjórnarmanni Man City. Getty/Matthew Ashton
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, spáir því að úrslitin í ensku úrvalsdeildinni ráðist ekki fyrr en í síðustu tveimur umferðum mótsins. City getur jafnað Liverpool að stigum vinni liðið Everton í kvöld. Liverpool hefur gert jafntefli í tveimur síðustu leikjum sínum á móti Leicester og West Ham sem þýðir að stað þess að vera með sjö stiga forystu þá nær City toppsætinu á markatölu með sigri á Everton á Goodison Park. Útsending Stöðvar 2 Sport Everton og Manchester City hefst klukkan 19:35 í kvöld. Tottenham er heldur ekki út úr myndinni því liðið er bara fimm stigum á eftir toppliðunum og á eftir að mæta bæði Liverpool og Manchester City.Pep Guardiola: Man City boss expects title race to go down to 'last fixture or two' https://t.co/HdkqxHmFSA — BBC News (UK) (@BBCNews) February 6, 2019 Leikur Everton og Manchester City átti að fara fram 23. febrúar en var fluttur fram vegna þess að þá helgi mætir City liði Chelsea í úrslitaleik enska deildarbikarsins. Úrslitaleikur City og Chelsea fer fram á Wembley 24. febrúar og á sama degi fer fram risaleikur á Old Traford. City getur því unnið titil þennan dag sem er líka mjög mikilvægur fyrir Liverpool sem heimsækir þá Manchester United á Old Trafford í gríðarlega veigamiklum leik fyrir Jürgen Klopp og lærisveina hans. Í tilefni af orðum Pep Guardiola um að úrslitin ráðist í síðustu tveimur umferðunum er ekki úr vegi að skoða aðeins tvær síðustu umferðirnar og leiki toppliðanna í þeim. Manchester City mætir þar Leicester á heimavelli og sækir síðan Brighton heim í lokaumferðinni. Liverpool heimsækir Newcastle og tekur síðan á móti Wolves á Anfield í lokaumferðinni. Tottenham er á útivelli á móti Bournemouth og í lokaumferðinni kemur svo Everton í heimsókn, vonandi á nýja Tottenham-leikvanginn.
Enski boltinn Mest lesið Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Handbolti Carlsen í neðsta sæti í Noregi Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Íslenski boltinn Emil Barja tekur við Stjörnunni Körfubolti Vilja ráða Iraola eða Lampard Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjá meira