Fyrir átta árum þá borgaði Liverpool miklu meira fyrir Carroll en Suarez Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. janúar 2019 15:30 Andy Carroll frá Newcastle United og Luis Suárez með Kenny Dalglish á þessum degi fyrir átta árum síðan. Getty/John Powell
Ein bestu og verstu kaup í langri sögu Liverpool litu bæði dagsins ljós á þessum degi fyrir nákvæmlega átta árum síðan. 31. janúar 2011 gekk Liverpool frá kaupunum á þeim Andy Carroll frá Newcastle United og Luis Suárez frá Ajax. Kenny Dalglish var nýtekinn við félaginu af Roy Hodgson og fékk það í gegn að styrkja sóknarlínu liðsins svo um munaði. Á sama tíma seldi Liverpool Spánverjann Fernando Torres til Chelsea fyrir 50 milljónir punda.#OTD in 2011: Liverpool sold Fernando Torres to Chelsea, and signed Andy Carroll from Newcastle United (£35m), and Luis Suarez from Ajax (£22.8m). #TransferDeadlineDaypic.twitter.com/xsClHtvOkX — Half Time Cuppa (@Halftime_Cuppa) January 31, 2019Liverpool borgaði vissulega 22,7 milljónir punda fyrir Luis Suárez en það reyndust frábær kaup. Luis Suárez spilaði í þrjú og hálft ár með félaginu og var síðan seldur til Barcelona fyrir 64,98 milljónir punda í júlí 2014. Á þessum þremur og hálfu tímabili þá skoraði Luis Suárez 69 mörk í 110 deildarleikjum með Liverpool og alls 82 mörk í 133 leikjum í öllum keppnum. Liverpool borgaði hins vegar 35 milljónir punda fyrir Andy Carroll sem félagið sá fyrir sér sem framtíðarframherja enska landsliðsins. Það fór ekki alveg svo og hann spilaði sinn níunda og síðasta landsleik árið eftir. Andy Carroll kostaði Liverpool því meira en tólf milljónir punda meira en Luis Suárez. Carroll skoraði aðeins 6 mörk í 44 deildarleikjum með Liverpool liðinu áður en hann var lánaður og síðar seldur til West Ham fyrir fimmtán milljónir punda. Liverpool græddi því rúmar 42 milljónir punda á Luis Suárez sem auk þess að skoraði 82 mörk fyrir félagið en tapaði tuttugu milljónum punda á Andy Carroll sem skoraði aðeins 11 mörk í 58 leikjum fyrir félagið í öllum keppnum.ON THIS TRANSFER DAY: In 2011, Liverpool signed Luis Suárez for £22.8m & Andy Carroll for £35m. One worked out better than the other... pic.twitter.com/29YXOX2lyy — Squawka Football (@Squawka) January 31, 2019
Enski boltinn Mest lesið Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira