Orðspor Mo Salah í hættu? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. janúar 2019 09:30 Mohamed Salah fiskar hér víti á móti Brighton á dögunum. Getty/Andrew Powell
Mohamed Salah verið frábær á einu og hálfu tímabili sínu með Liverpool en ný þykir sumum knattspyrnuspekingum hann farinn að tefla á tæpasta vað með orðspor sitt. Stuðningsmenn andstæðinga Liverpool hafa verið duglegir að benda á dýfingar hjá Egyptanum að undanförnu eftir að hann fiskaði vítaspyrnur á móti bæði Newcastle og Brighton en Mohamed Salah gerði sjálfum sér síðan engan greiða í leiknum á móti Crystal Palace um helgina. Fyrrum dómarinn Keith Hackett skrifar pistil um helgina í enska boltanum í Telegraph og þar fer hann meðal annars yfir leikaraskap Mohamed Salah.Keith Hackett: "There is a less savoury side to his football which is in danger of spoiling his reputation" https://t.co/e4VIOCyr60 — Telegraph Football (@TeleFootball) January 20, 2019Það má deila um leikaraskap Mohamed Salah þegar hann fiskaði vítaspyrnurnar á móti bæði Newcastle og Brighton. Hann fór auðveldlega niður í bæði skiptin en í bæði skiptin var engu að síður brotið á honum. Egyptinn getur aftur á móti ekki haldið neinu slíku fram í umdeildu atviki í leiknum á móti Crystal Palace því þar var um augljósan leikaraskap að ræða. Keith Hackett fer sérstaklega yfir það í pistli sínum. Keith Hackett segir engan vafa á því að þarna hafi Mohamed Salah látið sig falla í teignum til að reyna að fiska víti. Jon Moss, dómari leiksins, lét ekki plata sig en klikkaði á því að gefa Salah gult spjald fyrir leikaraskap. Hackett segir að dómararnir í ensku úrvalsdeildinni fari reglulega yfir myndbönd með leikaraskap í deildinni til þess að reyna að hjálpa sér í slíkum aðstæðum. Þessi gamalreyndi dómari telur að nú sé enginn vafi á því að leikaraskapur Mohamed Salah verði tekinn fyrir á slíkum fundum. Að mati Keith Hackett er orðspor Mohamed Salah nú í hættu meðal dómaranna í deildinni sem og annarra. Mohamed Salah þurfti reyndar enga vítaspyrnu til að skora mörkin sín á móti Crystal Palace þar sem Liverpool vann 4-3 endurkomusigur og hélt fjögurra stiga forskoti á Manchester City. Salah skoraði tvö mörk og er nú markahæsti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu með sextán mörk.
Enski boltinn Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Einn sá besti snýr aftur Sport Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Sjá meira