Fékk óhuggulegar fréttir fyrir leikinn en tryggði svo Man United sigurinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2019 09:00 Marcus Rashford. Getty/Clive Rose
Enskir miðlar segja frá því að ráðist hafi verið á bræður Marcus Rashford og Trent Alexander-Arnold á kaffihúsi í Manchester á laugardaginn. Dane Rashford og Tyler Alexander-Arnold eru báðir umboðsmenn bræðra sinna sem spila með stórliðum Manchester United og Liverpool. Dane Rashford og Tyler Alexander-Arnold voru rændir á Littlerock kaffihúsinu í Moss Side hverfinu í Manchester en þrír menn mættu þangað vopnaðir byssu, sveðju og hafnarboltakylfu. Þrír slösuðust í ráninu en það fer tvennum sögum af því hvort að þeir Dane Rashford og Tyler Alexander-Arnold séu í þeim hópi.The brothers of Marcus Rashford and Trent Alexander-Arnold were attacked during an armed robbery at a restaurant. More here: https://t.co/By7hGAa2ITpic.twitter.com/Ohql5J6Xay — BBC Sport (@BBCSport) January 14, 2019 Telegraph heldur því hinsvegar fram að bróðir Marcus Rashford hafi endað á sjúkrahúsi eftir árásina en sólarhring síðar skoraði Marcus Rashford einmitt sigurmark Manchester United í leik á móti Tottenham á Wembley. Samkvæmt upplýsingum Telegraph enduðu Dane Rashford og Tyler Alexander-Arnold báðir á sjúkrahúsi en voru hvorugur mikið slasaður og því sleppt fljótlega. Enginn slasaðist alvarlega í ráninu en fólkið var auðvitað í miklu sjokki.Brothers and agents of Marcus Rashford and Trent Alexander-Arnold robbed at gunpoint in Moss Side https://t.co/iVrim2JvjA — Telegraph Football (@TeleFootball) January 13, 2019Það kemur fram í sömu frétt að Marcus Rashford hafi frétt af árásinni á bróður sinn fyrir leikinn á móti Tottenham en enski landsliðsframherjinn snjalli var löngu kominn suður til London vegna leiksins, þegar ránið fór fram. Marcus Rashford lét þessar óhuggulegu fréttir ekki á sig fá því hann skoraði eina markið í leik Manchester United og Tottenham og tryggði United liðinu með því fimmta deildarsigurinn í röð. Lögreglan í Manchester var fljót að finna sökudólgana ef marka má upplýsingar hennar. Fjórir menn, 18 ára, 19 ára, 23 ára og 58 ára, og svo tveir sautján ára gamlir drengir hafa verið handteknir vegna málsins samkvæmt frétt BBC. Í ráninu ógnuðu mennirnir gestum veitingahússins og skipuðu þeim að afhenda öll verðmæti sem og bíllykla sína.
Enski boltinn Mest lesið Albert ekki meira með íslenska landsliðinu Fótbolti Neitar að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Fótbolti Íslenska landsliðið í bakgarðshlaupum klárt Sport Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk Íslenski boltinn „Þetta er þorpið manns“ Íslenski boltinn Leik lokið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Íslenski boltinn Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Formúla 1 Kane klúðraði víti og heimsmeistararnir voru fljótir að refsa Fótbolti Leik lokið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Íslenski boltinn Leikmaður Írlands dregur sig úr leikmannahóp gegn Ísrael Fótbolti Fleiri fréttir Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Sjá meira