Mourinho: United ekki hræddir við að vera varnarsinnaðir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. desember 2019 22:21 Mourinho fór tómhentur frá Old Trafford. vísir/getty
José Mourinho mætti með Tottenham á Old Trafford, sinn gamla heimavöll, í kvöld. Úrslitin voru Portúgalanum ekki að skapi en Manchester United vann 2-1 sigur. Marcus Rashford skoraði bæði mörk United, það síðara úr vítaspyrnu í upphafi seinni hálfleiks. „Við byrjuðum seinni hálfleikinn á að fá á okkur mark sem þú átt ekki að fá á þig. Við vorum sofandi í innkasti og Rashford fékk boltann. Þegar hann er kominn inn í teiginn er erfiðara að verjast honum. Hann var sniðugur og beið eftir snertingu,“ sagði Mourinho eftir leik. „Þeir byrjuðu leikinn betur, komust sanngjarnt yfir og hefðu getað komist í 2-0. En svo byrjuðum við að stjórna leiknum. Markið í upphafi seinni hálfleiks gerði United kleift að spila eins og þeir gerðu.“ Mourinho gat ekki stillt sig um að skjóta á sitt gamla lið. „United hefur náð góðum úrslitum gegn bestu liðunum. Þeir eru ekki hræddir við að vera varnarsinnaðir. Það er auðveldara gegn betri liðum sem vilja vera með boltann,“ sagði Mourinho. Tottenham vann fyrstu þrjá leikina undir stjórn Portúgalans en það kom bakslag í kvöld. „Þetta var skref aftur á bak gegn liði sem er í sömu baráttu og við. Að reyna að klífa töfluna og komast í efstu sex sætin,“ sagði Mourinho. „Við þurfum að halda áfram. Við gerðum mistök en græðum ekkert á því að gráta þau núna. Okkar bíður erfiður leikur gegn Burnley á laugardaginn.“ Mourinho fékk góðar móttökur á Old Trafford í kvöld. „Þetta var indælt eins og ég bjóst við,“ sagði Portúgalinn að lokum.
Enski boltinn Tengdar fréttir Mourinho sótti ekki gull í greipar gamla liðsins Marcus Rashford tryggði Manchester United sigur á Tottenham á Old Trafford. 4. desember 2019 21:15 Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Sjá meira
Mourinho sótti ekki gull í greipar gamla liðsins Marcus Rashford tryggði Manchester United sigur á Tottenham á Old Trafford. 4. desember 2019 21:15