Klopp: Manchester City er ennþá besta lið í heimi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. janúar 2019 16:00 Jürgen Klopp. vísir/getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, talaði lið Manchester City upp fyrir stórleik liðanna í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld. Manchester City er í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar, sjö stigum á eftir toppliði Liverpool, en City vann yfirburðarsigur í ensku deildinni á síðustu leiktíð. Liverpool mætir í heimsókn á Ethiad leikvanginn á morgun og getur náð tíu stiga forystu á menn Pep Guardiola með sigri. Leikurinn er mikilvægur fyrir Liverpool-liðið en lífsnauðsynlegur fyrir Manchester City ætli liðið að verja titilinn í vor. „Þetta er venjulegur leikur á móti Manchester City en um leið mjög erfiður leikur. Þetta er einn erfiðasti leikurinn sem þú getur spilað í nútímafótbolta,“ sagði Jürgen Klopp á blaðamannafundi í dag. „Þeir eru mjög öflugt fótboltalið með frábæran knattspyrnustjóra. Þú veist aldrei hvað þú ert að fara út í á móti þeim,“ sagði Klopp. „Við verðum að undirbúa okkur eins vel og við getum, við þurfum að vera hugrakkir, fullir af löngun og þurfum að spila reiðir eins og í öllum hinum leikjunum,“ sagði Klopp. „Mótherjinn er að mínu mati ennþá besta lið í heimi,“ sagði Klopp.Man City are "still the best team in the world" - that's the view of Jurgen Klopp. Read what he said ahead of #MCILIV: https://t.co/YEIxs5qvFBpic.twitter.com/z9XevCWth4 — BBC Sport (@BBCSport) January 2, 2019 Guardiola sagði fyrir leikinn að Manchester City hafi ekki á því að tapa stigum í þessum leik ef þær ætli að verða aftur enskir meistarar. Klopp er ekki sammála. „Þið verðið að spyrja Pep af hverju hann sagði þetta. Ef við værum tíu stigum á eftir þeim eftir þennan leik þá myndi ég samt segja að við gætum náð þeim,“ sagði Klopp. „Það er ennþá bara 2. janúar. Þetta er samt mjög, mjög, mjög mikilvægur leikur fyrir bæði lið. Þetta er einn af þessum sex stiga leikjum sem geta haft mikil áhrif. Þeir vita það og mæta örugglega hundrað prósent tilbúnir,“ sagði Klopp.
Enski boltinn Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Fótbolti „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Segir ekki mikil gæði vera hjá ökumönnum í Formúlu 1 Formúla 1 Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Nottingham Forest endaði taphrinuna Sjá meira