Lampard stýrði Chelsea til sigurs á móti Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júlí 2019 12:30 Tammy Abraham fagnar hér marki sínu með þeim Christian Pulisic og Mason Mount. Getty/Atsushi Tomura
Chelsea vann 2-1 sigur á Barcelona í æfingarleik í Japan í dag og Frank Lampard er því þegar farinn að stýra liðinu til sigurs á móti stórliðum Evrópu. Mörk Chelsea í leiknum skoruðu þeir Tammy Abraham og Ross Barkley. Barcelona minnkaði muninn undir lokin með flottu marki Ivan Rakitic. Antoine Griezmann lék þarna sinn fyrsta leik með Barcelona en þetta var fyrsti leikur spænska liðsins á undirbúningstímabilinu.Full-time: Chelsea 2-1 Barcelona! Goals from @tammyabraham and @RBarkley8 secure the win in our final game in Japan! #CFCinJapanpic.twitter.com/BD0JdfmUPs — Chelsea FC (@ChelseaFC) July 23, 2019 Frank Lampard tók við Chelsea liðinu í sumar og þetta var fjórði leikur liðsins á undirbúningstímabilinu. Chelse hafði áður unnið írska liðið St Patrick's Athletic, gert jafntefli við írska liðið Bohemians og tapað fyrir japanska liðinu Kawasaki Frontale. Chelsea liðið lítur vel út undir stjórn Lampard. Mason Mount og Christian Pulisic voru báðir að gera góða hluti og það var gott fyrir Tammy Abraham að finna markaskóna sína. Tammy Abraham kom Chelsea í 1-0 á 35. mínútu og bætti fyrir dauðafæri sem hann klúðraði áður í leiknum. Jorginho vann boltann og hann fór inn í hlaupaleið Abraham og nía nían hjá Chelsea skoraði af yfirvegun. Barcelona byrjaði seinni hálfleikinn vel en náði ekki að nýta sér það með marki. Chelsea hélt forystunni og bætti síðan við marki. Ross Barkley skoraði seinna markið á 81. mínútu þegar hann skoraði með lúmsku og hnitmiðuðu skoti af vítateigslínunni. Ivan Rakitic minnkaði muninn fyrir Barcelona í uppbótatíma með frábæru skoti af löngu færi. Chelsea mætir Reading um næstu helgi og svo á liðið eftir að spila við Red Bull Salzburg og Borussia Mönchengladbach á þessu undirbúningstímabili.
Enski boltinn Mest lesið Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Íslenski boltinn Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Íslenski boltinn Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Enski boltinn Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Handbolti Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Körfubolti Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Íslenski boltinn Reglum um gul spjöld á HM verði breytt Fótbolti Klúður Koo bjargaði lífi hestaþjálfara Sport Besta sætið: Rauð flögg hjá Stjörnunni Sport Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Sjá meira