Pochettino ósáttur við að skuldinni sé skellt á hann þegar leikmenn ná ekki árangri Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 24. júlí 2019 15:00 Mauricio Pochettino
Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham, segist ekki sáttur við að hann þurfi að taka alla ábyrgðina þegar leikmenn sem koma til félagsins ná ekki þeim árangri sem ætlast er til af þeim. Á þeim fimm árum sem Pochettino hefur verið hjá Tottenham hafa flestir leikmenn sem komu inn náð að sanna sig. Einn þeirra sem gerði það ekki var Vincent Janssen en hann gekk til liðs við mexíkóska félagið Monterrey frá Tottenham í vikunni. Í ljósi brotthvarfs Janssen spurðu blaðamenn Pochettino út í árangurinn í leikmannakaupum. „Ég held að þegar þið segið að ég nái góðum árangri þegar ég fæ inn leikmenn þá sé það ekki satt,“ sagði Pochettino á blaðamannafundi fyrir leik Tottenham og Manchester United í International Champions Cup. „Það er félagið sem fær til sín leikmenn, ekki Mauricio. Stundum fær mitt álit að vega meira en annarra og stundum hefur mitt álit minni áhrif.“ Stjórnarformaðurinn Daniel Levy og Steve Hitchin, yfirnjósnari Tottenham, koma báðir að leikmannakaupum ásamt Pochettino. „Mér finnst það vera þannig að þegar leikmenn koma inn og ná góðum árangri fáum við allir hrós, en þegar þeir ná ekki árangri þá er það stjóranum að kenna.“ Leikur Tottenham og Manchester United er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport á morgun, fimmtudag, og hefst útsending klukkan 11:25.
Enski boltinn Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Á sársaukafullar minningar af HM Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Sjá meira