Ógæfufólki og brennuvörgum bægt í burtu Sveinn Arnarsson skrifar 21. febrúar 2018 05:44 Eins og sjá má er hverfið að byggjast upp syðst í bæjarlandinu. Stutt er í Kjarnaskóg frá nýju Hagahverfi. Vísir/Auðunn
Tilvonandi íbúar í nýju Hagahverfi á Akureyri hafa með samstilltu átaki bægt ógæfufólki sem öðru fólki stendur ógn af burt úr íbúahverfi sínu syðst á Akureyri. Til stóð að setja þennan hóp í smá- hýsi í hinu nýja hverfi. Urðu margir hverjir fokillir út í bæjaryfirvöld fyrir að auglýsa nýtt skipulag sem breyta átti götunni Nonnahaga. Í stað þriggja einbýlishúsa átti að setja upp þjónustuíbúðir fyrir „vímuefnaneytendur og ótuktarlýð“ eins og einn tilvonandi íbúi orðaði það. Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkti á síðasta fundi að auglýsa tillöguna. Hún gekk út á að fólk sem býr við fjölþættan vanda byggi á staðnum auk þess að þarna yrðu skipulagðar íbúðir fyrir fatlaða einstaklinga. Þeir sem höfðu keypt hús á svæðinu urðu furðu lostnir við þessa ákvörðun bæjarstjórnar.Hulda Frímannsdóttir er ein þeirra sem töluðu gegn hugmyndinni og hefur nú lagt bæjarstjórn að velli. Vísir/Auðunn„Um er að ræða einstaklinga sem ekki er talið forsvaranlegt að hafa í venjulegum fjölbýlishúsum. Ástæðan er ónæði, ógn og hætta sem nágrönnum getur stafað af þessu fólki, svo sem vegna hávaða, óþrifa, hættu á íkveikju eða annars konar skemmdum á húsnæði,“ segir í greinargerð með tillögunni. Meirihluti bæjarstjórnar Akureyrar sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem horfið var frá þessum hugmyndum og því má segja að tilvonandi nágrannar hafi unnið fullnaðarsigur. „Það er mat okkar undirritaðra að ekki sé hægt að setja húsnæðisúrræði eins og smáhýsi inn á þegar deiliskipulagt svæðisem er í fullri uppbyggingu,“ segir í tilkynningu meirihlutans. „Það er hins vegar okkar mat að þjónustukjarni fyrir einstaklinga með fötlun eigi eftir að sóma sér vel á fyrirhuguðum stað enda eiginlegur hluti af hverfinu og fordæmi fyrir því víða í bænum.“ „Við samþykktum að auglýsa tillöguna og nú er það í höndum bæjarbúa að hafa áhrif með því að senda inn um sagnir og við hvetjum fólk til að senda inn umsagnir,“ segir Ingibjörg Isaksen, sem ræddi tillöguna á síðasta fundi í bæjarstjórn Akureyrar. „Mín persónulega skoðun er sú að þetta sé ekki heppileg staðsetning.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira