Fótbolti

Jón Dagur á skotskónum í sigri Vendsyssel

Dagur Lárusson skrifar
Jón Dagur skoraði jöfnunarmarkið í dag.
Jón Dagur skoraði jöfnunarmarkið í dag. vísir/getty
Jón Dagur Þorsteinsson var á skotskónum í sigri Vendsyssel á stórliði FC Kaupmannahöfn í dönsku deildinni í dag.

 

Fyrir leikinn var Vendsyssel í næstneðsta sæti deildarinnar með níu stig á meðan FC Kaupmannahöfn var í öðru sæti með 22 stig.

 

Það voru gestirnir frá Kaupamannahöfn sem byrjuðu leikinn betur og náðu þeir forystunni á 25. mínútu með marki frá Robert Skov og var staðan 0-1 í hálfleiknum.

 

Þegar um stundarfjórðungur var eftir virtist allt stefna í það að FC Kaupamannahöfn myndi náð að landa sigrinum en þá steig Jón Dagur fram og jafnaði metin fyrir sitt lið.

 

Mark Jóns hleypti nýju lífi í liðsmenn Vendsyssel sem sóttu stíft eftir þetta í leit að sigurmarkinu og kom það mark aðeins þremur mínútum seinna og var það Morten Knudsen sem skoraði það.

 

Lokatölur því 2-1 og eftir sigurinn er Vendsyssel komið í 12. sæti deildarinnar með tólf stig.

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×