Fótbolti

Jón Dagur lagði upp fyrir Vendsyssel

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Jón Dagur Þorsteinsson er samningsbundinn Fulham en leikur sem lánsmaður hjá Vendsyssel.
Jón Dagur Þorsteinsson er samningsbundinn Fulham en leikur sem lánsmaður hjá Vendsyssel. Vísir/Getty
Íslenski unglingalandsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði Vendsyssel þegar liðið mætti botnliði Hobro í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en Jón Dagur var nýverið lánaður til Danmerkur frá enska úrvalsdeildarliðinu Fulham.

Jón Dagur lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Andreas Kaltoft á 28.mínútu þar sem heimamenn komust yfir.

Hobro náði hins vegar að jafna metin skömmu fyrir leikhlé og staðan í leikhléi því jöfn.

Jóni var skipt af velli á 82.mínútu en fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og niðurstaðan því jafntefli, 1-1.

Vendsyssel hefur níu stig eftir níu leiki og er í tíunda sæti deildarinnar en fjórtán lið leika í dönsku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×