Rafa Benitez talar til eigandans í gegnum fjölmiðla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. ágúst 2018 15:30 Rafa Benitez. Vísir/Getty
Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Newcastle United, er ekki bjartsýnn á tímabilið ef marka má nýjasta viðtalið við hann í enskum fjölmiðlum. Newcastle United tapaði 4-0 á móti portúgalska félaginu Braga í næstsíðasta undirbúningsleik sínum fyrir tímabilið og nýjasta útspil spænska knattspyrnustjórans er að reyna að setja á pressu á eiganda félagsins Mike Ashley í gegnum fjölmiðla. „Það gengur ekki vel hjá okkur utan vallarins og það má sjá spegilmynd af því inná vellinum,“ sagði Rafa Benitez við BBC. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Benitez reynir að setja pressu á Mike Ashley með þessum hætti. Benitez telur sig þurfa að styrkja liðið sitt meira fyrir tímabilið en liðið endaði í 10. sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Newcastle fékk slóvakíska markvörðurinn Martin Dúbravka frá Sparta Prag fyrir fjórar milljónir punda og svissneska varnarmanninn Fabian Schär frá Deportivo La Coruna fyrir þrjár milljónir puna. Þá kom kóresku miðjumaðurinn Ki Sung-yueng frá Swansea City á frjálsri sölu. Newcastle hefur aftur á móti selt leikmenn fyrir 42 milljónir punda eins og framherjann Aleksandar Mitrovic til Fulham fyrir 22 milljónir punda og miðjumanninn Mikel Merino til Real Sociedad fyrir tíu milljónir punda. „Við sjáum að liðin sem eru að koma upp hafa eytt miklum peningum í leikmenn. Þegar við tökum þá staðreynd inn í myndina þá ættu allir að skilja af hverju við þurfum að hafa áhyggjur af komandi tímabili,“ sagði Rafa Benitez. Fyrsti leikur Newcastle United á tímabilinu er á móti Tottenham og fer hann fram eftir níu daga.
Enski boltinn Mest lesið Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Fótbolti Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Formúla 1 Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti Strákarnir sitja fastir Fótbolti Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira