Íslenski boltinn

Bikarúrslitaleikurinn færður á föstudaginn fyrir Menningarnótt

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
ÍBV er ríkjandi bikarmeistari. Nýtt lið tekur við titlinum í ár.
ÍBV er ríkjandi bikarmeistari. Nýtt lið tekur við titlinum í ár. vísir/ernir
Stjarnan og Breiðablik leika til úrslita í Mjólkurbikar kvenna. Bikarúrslitaleikurinn hefur verið færður á föstudagskvöldið 17. ágúst.

Til stóð að úrslitaleikurinn yrði haldinn laugardaginn 18. ágúst en hann hefur nú verið færður fram og verður leikinn kvöldið áður. Ákvörðunin var tekin í samráði við félögin tvö sem um ræðir.

Menningarnótt fer fram í Reykjavík þessa helgi og „það má segja að upphitun Menningarnætur í Reykjavík hefst því á stórleik Stjörnunnar og Breiðabliks í Mjólkurbikarkeppni kvenna,“ segir í tilkynningu frá KSÍ.

Leikurinn verður leikinn á þjóðarleikvanginum, Laugardalsvelli. Frítt verður á leikinn fyrir 16 ára og yngri.

Stjarnan lék til úrslita í fyrra en tapaði þá fyrir ÍBV í framlengdum leik. Breiðablik varð bikarmeistari fyrir tveimur árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×