Króatinn í Liverpool öskraði á liðsfélagana í hálfleik og kveikti í sínum mönnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. apríl 2018 09:30 Dejan Lovren fagnar sigri í leikslok. Vísir/Getty
Það var Dejan Lovren af öllum mönnum sem hafði sig mest í frammi í hálfleik á leik Liverpool og Manchester City í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöldið. Manchester City var 1-0 yfir í hálfleik og hafði skorað mark skömmu fyrir hlé sem var ranglega dæmt af. Það stefndi því allt í mjög erfiðan seinni hálfleik fyrir Liverpool sem hafði samt 3-0 forskot frá fyrri leiknum. Liverpool menn komu hinsvegar mjög sterkir til baka í seinni hálfleik, skoruðu tvö mörk og tryggðu sér annan Meistaradeildarsigurinn á Manchester City á aðeins sex dögum. „Ef ég segi alveg eins og er þá öskraði ég aðeins í hálfleik,“ sagði Króatinn Dejan Lovren í viðtali við Telegraph. „Ég sagði strákunum að vakna því þetta var ekki nógu gott og við vorum alltof aftarlega. Auðvitað sagði Klopp að við værum of aftarlega af því að vörnin væri ekki að ýta liðinu upp á völlinn,“ sagði Lovren.Liverpool players reveal half-time dressing-room fireworks inspired second half reaction against Man City | @_ChrisBascombehttps://t.co/KJVleiKPyr — Telegraph Football (@TeleFootball) April 11, 2018 „Klopp vildi að ég og Virgil værum þéttari og að við reyndum að ýta liðinu meira upp völlinn en það var mjög erfitt þegar City var með boltann. Þetta var samt allt á jákvæðu nótunum og engin neikvæðni í gangi,“ sagði Lovren og bætti við: „Ég þurfti bara að minna strákana aðeins á það að við vorum 50 mínútum frá undanúrslitum Meistaradeildarinnar og að við þyrftum að gefa meira í leikinn,“ sagði Lovren. „Við vorum alls ekki nógu góðir fyrstu 10 til 15 mínúturnar í leiknum. En ef fólk horfir aftur á seinni hálfleikinn þá voru þeir ekki að skapa mörg færi og ekkert dauðafæri,“ sagði Lovren.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Íslenski boltinn Saka með þrennu í ótrúlegum bronsleik Fótbolti Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Íslenski boltinn „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Uppgjörið: Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Íslenski boltinn Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Sport Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti „Ég er bara í brjáluðu skapi“ Íslenski boltinn Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Fleiri fréttir Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Sjá meira