Enski boltinn

Jóns Daða áhrifin í ensku b-deildinni sem við Íslendingar skiljum ekkert í

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Daði Böðvarsson.
Jón Daði Böðvarsson. Vísir/Samsett/Getty
Síðan að Jón Daði Böðvarsson hóf að leika með íslenska fótboltalandsliðinu hafa strákarnir okkar komist inn á tvö stórmót í röð. Áhrif hans í ensku b-deildinni eru þó af allt öðrum toga eða svo segir gengi félaganna með og án hans.

Hvaða Íslendingur elskar ekki duglegasta framherja íslenska landsliðsins fyrr og síðar? Jón Daði Böðvarsson hefur unnið sig upp í stórt hlutverk í íslenska landsliðinu sem er á leiðinni á HM í Rússlandi í sumar.

Jón Daði hefur spilað í ensku b-deildinni undanfarin tvö tímabil, fyrst með Wolverhampton Wanderers og svo með Reading.

Ísland hefur komist á tvö stórmót með hann innanborðs en aldrei án hans. Þess vegna skiljum við Íslendingar ekki Jóns Daða áhrifin í ensku b-deildinni.

Wolverhampton Wanderers eða Wolves eins og við köllum Úlfana vanalega unnu sér um helgina sæti í ensku úrvalsdeildinni níu mánuðum eftir að liðið seldi Jón Daða Böðvarsson til Reading.

Jón Daði hafði gert þriggja ára samning við Úlfana en lék aðeins með liðinu í eitt tímabil Reading keypti hann í júlí í fyrra.

Tímabilið 2016-17 þá endaði Wolves í 15. sæti ensku b-deildarinnar og var 22 stigum frá því að komast í umspilið um þriðja og síðasta sætið í ensku úrvalsdeildinni.

Reading endaði aftur á móti í 3. sæti deildarinnar og var aðeins átta stigum frá því að vinna sér beint sæti í ensku úrvalsdeildinni. Reading tapaði síðan fyrir Huddersfield Town í hreinum úrslitaleik umspilsins um sæti í úrvalsdeildinni.

Í vetur var allt annað að sjá til liðanna tveggja. Wolves er með 12 stiga forskot á toppnum og hefur þegar tryggt sér sæti í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2018-19 en Reading er aftur á móti í 19. sæti og aðeins fimm stigum frá fallsæti.

Wolves hækkaði sig um fjórtán sæti eftir að liðið missti Jón Daða og Reading lækkaði sig um sextán sæti eftir að liðið fékk til sín Jón Daða.

Það má alls ekki líta framhjá því að nýir kínverskir eigendur hafa tekið yfir Wolves og dælt peningum inn í félagið. Úlfarnir styrktu sig mikið, fengu nýja öflugan stjóra og eru til alls líklegir á næstu árum í ensku úrvalsdeildinni.



Wolves og Reading með Jón Daða Böðvarsson innanborðs 2016/17 og 2017/18

Wolves - 15. sæti (16 sigrar og 58 stig)

Reading - 19. sæti (10 sigrar og 43 stig)

Wolves og Reading án Jóns Daða Böðvarssonar 2016/17 og 2017/18

Wolves - 1. sæti (29 sigrar og 95 stig)

Reading - 3. sæti (26 sigrar og 85 stig)

Það koma auðvitar margir aðrir þættir inn í þetta en frammistaða eins leikmanns. Jón Daði var vinsæll leikmaður hjá Úlfunum og hefur verið það líka hjá Reading.  Vonandi fær okkar maður tækifæri á næstu árum til að hjálpa sínu liði upp í ensku úrvalsdeildina þangað sem gömlu liðsfélagar hans í Wolves munu spila á næstu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×