Slæmar fréttir fyrir Juventus en miklu betri fréttir fyrir Tottenham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2018 12:00 Paulo Dybala. Vísir/Getty
Argentínumaðurinn Paulo Dybala meiddist um helgina og óttast menn hjá Juventus að hann gæti verið frá í 40 til 45 daga. Ítalska blaðið Tuttosport segir frá því að fyrstu rannsóknir bendi til þess að tognun Dybala þýði að hann verði ekki með liðinu fyrr en í kringum 20. febrúar næstkomandi. Juventus sendi frá sér tilkynningu þar sem menn segja að þetta sé ekki mikil tognun hjá Paulo Dybala en að þeir þurfi að bíða í nokkra daga til að sjá betur hversu alvarleg hún er. Það er samt nánast öruggt að Dybala missi af fyrri leiknum á móti Tottenham í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar sem fer fram 13. febrúar. Hann ætti hinsvegar að ná seinni leiknum sem fer fram 7. mars. Þetta eru slæmar fréttir fyrir Juventus enda auðveldara fyrir Tottenham menn að þurfa ekki að hafa áhyggjur af þessum öfluga leikmanni. Paulo Dybala hefur skorað 14 mörk í 19 leikjum í ítölsku deildinni á þessu tímabili. Hann á aftur á móti enn eftir að skora í Meistaradeildinni. Dybala missir væntanlega líka af deildarleikjum á móti Genoa, Chievo, Sassuolo, Fiorentina og Torino sem og bikarleik á móti Atalanta. Fyrsti leikurinn hans eftir meiðslin gæti verið á móti Atalanta 25. febrúar.
Ítalski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Sjá meira