Mourinho: Ekki ég sem seldi Salah heldur Chelsea Henry Birgir Gunnarsson skrifar 27. apríl 2018 12:30 Ungur Salah við hlið Mourinho hjá Chelsea. vísir/afp
Eftir flugeldasýningu Mohamed Salah í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni í vetur hefur verið nokkuð mikið baunað á Jose Mourinho, stjóra Man. Utd, fyrir að hafa selt hann frá Chelsea á sínum tíma. Salah fór frá Chelsea til Roma fyrir tveimur árum síðan. Hann hefur verið ótrúlegur í vetur og skorað 43 mörk í öllum keppnum. „Fólk er að segja að ég hafi selt Salah en það er öfugt. Það var ég sem keypti Salah. Ég sagði Chelsea að kaupa leikmanninn,“ sagði Mourinho. „Hann var ungur strákur hjá okkur og líkamlega ekki tilbúinn í átökin sem og andlega reyndar. Félagslega og menningarlega var hann týndur og það var allt mjög erfitt hjá honum. Það var svo Chelsea sem ákvað að selja hann. Ok? Það var ekki mín ákvörðun að selja leikmanninn.“ Salah var fyrst lánaður til Fiorentina og svo Roma. Chelsea seldi hann svo til Roma og Liverpool keypti hann síðasta sumar. Mourinho segir að frammistaða Salah í vetur sé búin að vera svo rosaleg að hún hljóti að koma Salah sjálfum á óvart. „Hann er frábær leikmaður sem hefur náð hámarki í sínum þroska. Hann er búinn að ganga í gegnum ýmislegt en hefur smollið fullkomlega inn í leikkerfi Liverpool.“
Enski boltinn Mest lesið Viktor Gísli fær treyju númer eitt hjá Barcelona Handbolti Njarðvík með fjögurra stiga forskot á toppnum Íslenski boltinn Guðmundur í grænt Íslenski boltinn Calvert-Lewin á leið til Leeds Enski boltinn Willum lagði upp sigurmark Birmingham Enski boltinn PSG kom til baka og vann Ofurbikarinn í vítakeppni Fótbolti Jón Daði skoraði fyrsta markið fyrir Selfoss í þrettán ár og Fylkir á botninum Íslenski boltinn Mótherjarnir afsaka sig fyrir fram: „Hvort sem það er leikrit eða ekki“ Fótbolti Vill þjóðina upp á dekk: „Langt síðan við höfum átt alvöru heimavöll“ Fótbolti Jason Daði og félagar fá Rauðu djöflana í heimsókn Enski boltinn Fleiri fréttir Calvert-Lewin á leið til Leeds Willum lagði upp sigurmark Birmingham Jason Daði og félagar fá Rauðu djöflana í heimsókn Enska augnablikið: Hugsaði til van Persie eftir frægt mark í Eyjum Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Grealish valdi númerið sitt vegna Rooney og Gascoigne „Fáránleg staða sem er komin upp“ Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Vildi hvergi annarsstaðar spila Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Donnarumma skilinn eftir heima Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Sjá meira