Innlent

Kvikusöfnun hugsanlega að aukast í Öræfajökli

Birgir Olgeirsson skrifar
Svínafellsjökull er einn af skriðjöklum Öræfajökuls.
Svínafellsjökull er einn af skriðjöklum Öræfajökuls. Stöð 2/Arnar Halldórsson.
Kvikusöfnun er hugsanlega að aukast undir Öræfajökli og virðist eldstöðin vera að búa sig undir gos. Hvenær eða hvort gos verður yfir höfuð er hins vegar erfitt að spá fyrir um að mati sérfræðinga.

Sigurlaug Hjaltadóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir í samtali við Vísi að skjálftavirkni í eldstöðinni hafi aukist frá síðasta hausti og bendir flest til þess að aflögunin á henni hafi aukist frá því fyrri part árs.

Aflögunin er þensla á eldstöðinni sem er mæld með GPS-tækjum og gervitunglamyndum. Aukin aflögun getur gefið til kynna að kvikusöfnun sé að aukast en það hefur reynst erfitt að greina það því árssveiflur snjólaga og íss geta haft áhrif á mælingar.

Mælingarnar taka því ávallt frekar langan tíma því mögulega gæti bráðnun ísbreiðunnar yfir sumarið haft áhrif á aflögunina.

Nú sé hins vegar komið í ljós að aflögunin virðist vera að eiga sér stað með meiri hraða en fyrri part árs.

Gæti endað með innskotsvirkni

Greint var frá þessu á íbúafundi sem almannavarnanefnd sveitarfélagsins Hornafjarðar hélt í Hofgarði í Öræfum í gærkvöldi og fréttastofa Ríkisútvarpsins sagði frá.

Almannavarnir hafa verið með óvissuástand vegna jarðhræringa í Öræfajökli frá síðasta hausti. Ekki er talin ástæða til að hækka viðbúnaðarstigið að svo stöddu.

Sigurlaug segir ljóst að Öræfajökull sé að búa sig undir gos. Hvort eða hvenær það verður er erfitt að segja til um.

Mögulega gæti þess virkni jafnvel endað með innskotsvirkni og ekki kæmi til goss. Þá er ómögulegt að segja til um hvenær það mun gjósa, hvort það verði eftir nokkra mánuði, ár eða áratugi.

Sigurlaug segir fræðinga hins vegar sannfærða um að hægt sé að útiloka að gos verði í jöklinum á næstu dögum. Undanfarar ættu að sjást greinilega á mælum sem eru við eldstöðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×