Rasisti stakk heimilislausan mann til bana með sverði Samúel Karl Ólason skrifar 23. mars 2017 10:32 Hatursglæpum hefur fjölgað verulega í Bandaríkjunum að undanförnu. Vísir/Getty
Fyrrverandi hermaður stakk heimilislausan svartan mann til bana með sverði í New York á mánudaginn og gaf sig fram til lögreglu í gær. Hinn 28 ára gamli James Harris Jackson var handtekinn fyrir morð, en lögreglan segir morðið vera hatursglæp og að hann hafi valið fórnarlamb sitt af handahófi.Samkvæmt frétt New York Times, sagði Jackson lögregluþjónum að hann hefði flogið til New York frá Baltimore, þar sem hann á heima, til þess að myrða svarta menn og senda skilaboð. Hatursglæpum hefur fjölgað verulega í Bandaríkjunum að undanförnu. Árið 2016 voru slíkir glæpir tuttugu prósentum fleiri en árið 2015. Fjölgunin var sérstaklega mikil undir lok ársins, eftir forsetakosningarnar þar í landi. Jacskon stakk fórnarlambið, Timothy Caughman, fyrir utan veitingahús í borginni á mánudagskövldið eftir að hann gekk upp að Caughman og fór að rífast við hann. Sverðið skildi hann svo eftir í ruslatunnu, en Caughman komst á nærliggjandi lögreglustöð með stungusár á maga og baki. Hann lést á sjúkrahúsi skömmu seinna. Eftir að lögreglan birti myndir af Jacskon úr öryggismyndavélum gaf hann sig fram til lögreglu á miðvikudaginn. Lögreglan segir hann hafa verið einkar hreinskilinn varðandi morðið. Yfirmaður rannsóknarlögregluþjóna í hluta borgarinnar þar sem morðið var framið segir Jackson hafa hatað svarta menn lengi og að hann hafi komið sérstaklega til New York til þess að ráðast á svart fólk. Myndbandsupptöku sína að Jackson elti annan svartan mann í borginni á mánudaginn, en hann réðst ekki á hann. Lögreglan segir það mikla heppni að hann hafi ekki ráðist á fleiri en einn mann.
Mest lesið Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Innlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Innlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Erlent Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Innlent Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Erlent Fleiri fréttir Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Sjá meira