Krafinn afsagnar vegna ummæla sinna um skuldsettar Evrópuþjóðir Kristín Ólafsdóttir skrifar 22. mars 2017 16:15 Jeroen Dijsselbloem, formaður fjármálaráðherranefndar evruþjóðanna og fjármálaráðherra Hollands. Vísir/AFP
Jeroen Dijsselbloem, formaður fjármálaráðherranefndar evruþjóðanna og sitjandi fjármálaráðherra Hollands, á nú undir högg að sækja vegna ummæla sinna um ríki í Suður-Evrópu. Þetta kemur fram á vef BBC.„Ég get ekki eytt öllu mínu fé í áfengi og konur og farið svo og óskað eftir stuðningi,“ sagði Dijsselbloem í umdeildu viðtali. Ummælin eru túlkuð sem gagnrýni á stöðu skuldsettra ríkja í Suður-Evrópu. Forsætisráðherra Portúgal, Antonio Costa, segir ummælin bera merki um kynþáttafordóma og vill að Dijsselbloem segi af sér. Ernest Urtasun, spænskur Evrópuþingmaður, segir ummælin þrungin „algjörlega ómarktækum staðalímyndum sem loða við suðræn lönd“. Dijsselbloum segir ummæli sín ekki hafa beinst sérstaklega að einu ríki heldur hafi hann verið að leggja áherslu á „þær meginreglur sem styrkja eigi efnahagsleg sambönd“. Áætlað er að fjögurra ára kjörtímabili hans sem formaður fjármálaráðherranefndar evruþjóðanna ljúki í janúar 2018. Þá mun hann heldur ekki starfa mikið lengur sem fjármálaráðherra Hollands en á næstu vikum verður ný samsteypustjórn samþykkt í Hollandi.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Erlent Fleiri fréttir Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Sjá meira