Obama snýr aftur: „Jæja hvað hefur verið í gangi á meðan ég var í burtu?“ Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 24. apríl 2017 21:39 Barack Obama sneri í dag aftur í sviðsljósið eftir að hann lét af embætti forseta Bandaríkjanna í lok janúar. Vísir/Getty
Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, kom í fyrsta sinn opinberlega fram í dag síðan hann lét af embætti í lok janúar. Hann ræddi við unga leiðtoga í Háskólanum í Chicago og sló á létta strengi og byrjaði á því að spyrja „Jæja, hvað hefur verið í gangi á meðan ég var í burtu?“ og uppskar hlátur viðstaddra. Mikið hefur verið rætt um hvað Obama muni taka sér fyrir hendur nú þegar forsetatíð hans er lokið og sagðist hann ætla að einbeita sér að því að bæta stjórnmálamenningu Bandaríkjanna. „Ég hef eytt miklum tíma í að hugsa hvað sé það mikilvægasta sem ég get gert næst og ég er sannfærður um að þó það séu ýmis málefni sem mér er annt um og ætla mér að vinna að, það mikilvægasta sem ég get gert er að aðstoða við að búa næstu kynslóð leiðtoga undir að taka við keflinu og að reyna að breyta heiminum,“ sagði hann meðal annars. Hann sagði að málefni eins og ójöfnuður, dómskerfið og loftslagsbreytingar séu allt málefni sem þurfi að taka á. „Öll þessi málefni eru mikilvæg, þau eru yfirþyrmandi, en þau eru ekki óleysanleg. Það sem kemur í veg fyrir að við getum tekist á við þau eru stjórnmálin okkar og samfélagið.“Kannski bara kattamyndbönd Hann sagði að hagræðing sannleikans, áhrif efnamanna á stjórnmál og breytingar í fjölmiðlum hafa áhrif og leiða til þess að fólk hlusti einungis á fólk sem er því sammála og leiði til þess að fólk horfist ekki í augu við hvernig heimurinn er og hvað þurfi að gera til að bæta samfélagið. Hann sagði að fyrir 20-30 árum hafi verið sameiginlegur grunnur staðreynda. „Internetið hefur að einhverju leyti hraðað á því að fólk er ekki að tala um sömu hlutina... Eða kannski eruð þið bar að skoða kattamyndbönd, og það er allt í lagi.“ Hann sagði að eina fólkið sem gæti leyst þessi vandamál væri ungt fólk og að hann vilji einbeita sér að því hvað geri ungt fólk afhuga starfi í stjórnmálum. Hann sló á létta strengi, gerði grín að sjálfum sér og sagðist vera gamall og gaf gestum ráð um að deila ekki of miklu á samfélagsmiðlum. „Ef það væru til myndir af öllu sem ég gerði í menntaskóla þá hefði ég líklega ekki orðið forseti Bandaríkjanna,“ sagði hann. Obama nefndi Donald Trump núverandi Bandaríkjaforseta ekki á nafn á fundinum en gaf sér þó tíma til að gagnrýna stefnu núverandi ríkisstjórnar, þá sérstaklega í málefnum innflytjenda. Hann sagði að innflytjendur væru oftast fjölskyldur í leit að betra lífi fyrir börnin sín en að þeir sem vildu opnari landamæri mættu ekki falla í þá gryfju að halda að aðrir væru sjálfkrafa fordómafullir.
Mest lesið „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Innlent Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum Innlent Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Innlent Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Innlent Fleiri fréttir Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Sjá meira