Hollendingar kjósa á morgun: Rutte og Wilders tókust á í kappræðum Atli Ísleifsson skrifar 14. mars 2017 14:58 Hollenski forsætisráðherrann Mark Rutte og popúlistinn Geert Wilders tókust á í sjónvarpskappræðum í gær. Vísir/AFP
Hollendingar munu ganga að kjörborðinu og kjósa sér nýtt þing á morgun. Samskiptin við Tyrkland hefur einkennt síðustu daga kosningabaráttunnar. Mikil spenna er í loftinu þar sem óljóst er hvort að flokkur forsætisráðherrans Mark Rutte eða popúlistans Geert Wilders verði stærstur. Jafnvel þó að flokkur Wilders verði stærstur á þingi þykir ólíklegt að hann verði hluti af nýrri ríkisstjórn þar sem aðrir flokkar hafa keppst við að útiloka samstarf við Wilders sem hefur lengi barist hatrammlega gegn komu innflytjenda, því sem hann kallar „íslamsvæðingu Evrópu“ og Evrópusamrunanum.Tekinn í gíslingu af Erdogan Wilders og Rutte mættust í sjónvarpskappræðum í gærkvöldi þar sem Wilders reyndi að ná til kjósenda með því að ráðast gegn Rutte. „Þú hefur verið tekinn í gíslingu af Erdogan [Tyrklandsforseta]. Lokaðu hollensku landamærunum!,“ sagði Wilders. Rutte var fljótur til svars. „Það er munurinn á því að tísta úr sófanum og að stýra landi. Ef maður er ábyrgur fyrir landinu þá verður þú að grípa til skynsamlegra lausna,“ sagði Rutte, en Wilders er virkur á Twitter.Þykir hafa staðið upp í hárinu á TyrkjumFréttaskýrendur segja bæði Frelsisflokk Wilders (PVV) og Þjóðarflokk Rutte (VVD) hafa hagnast á deilunum við tyrknesk stjórnvöld á síðustu dögum. Rutte hefur verið hrósað heima fyrir fyrir að hafa staðið upp í hárinu á Erdogan og ekki látið ásakanir Tyrkja um nasisma og fasisma beygja sig.Sjá einnig:Allt sem þú þarft að vita um hollensku þingkosningarnar Eftir nýjustu ásakanir Erdogan fékk Rutte annað tækifæri til að svara fyrir sig. „Orð Erdogan varða sífellt móðursjúkari. Við munum ekki fara niður á þetta plan,“ sagði Rutte.Flokkur Rutte aðeins stærriÍ nýjustu skoðanakönnunum hefur flokkur Rutte mælst ögn stærri en flokkur Wilders, sem er álíka stór og flokkur Kristilegra demókrata (CDA). Á hæla þessara þriggja flokka fylgir svo Græni vinstriflokkurinn (Groen Links), en formaðurinn Jesse Klaver þykir hafa staðið sig sérlega vel í kosningabaráttunni. Vinstriflokkurinn D66 á einnig möguleika á að verða einn af stærstu flokkunum. VVD-flokkur Rutte og Verkamannaflokkurinn unnu báðir sigra í kosningunum árið 2012 og mynduðu saman ríkisstjórn að kosningum loknum, eftir að fyrrverandi samstarfsflokkar VVD, Kristilegir demókratar og Frelsisflokkurinn, höfðu misst þingsæti í kosningunum.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Fleiri fréttir Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda Sjá meira