Fréttir af vannærðum munaðarlausum börnum skekja Hvíta-Rússland Atli Ísleifsson skrifar 21. apríl 2017 10:53 Myndirnar eru sagðar minna um margt á myndir af vannærðum börnum á rúmenskum heimilum fyrir munaðarlausa sem vöktu mikla athygli í byrjun tíunda áratugarins.
Óhugnanlegar fréttir og myndir af vannærðum börnum á heimilum fyrir munaðarlausa hefur vakið mikla reiði í Hvíta-Rússlandi. Lögregla hefur hefur hafið rannsókn á málinu. Málið snýst um að nærri hundrað munaðarlaus börn hafi verið látin lifa við sultarmörk á slíkum heimilum í höfuðborginni Minsk. Í frétt Guardian segir að á heimilunum hafi meðal annars fundist táningar sem vógu einungis fimmtán kíló og hafi þurft að búa við skelfilegar aðstæður um árabil. Myndirnar eru sagðar minna um margt á myndir af vannærðum börnum á rúmenskum heimilum fyrir munaðarlausa sem vöktu mikla athygli í byrjun tíunda áratugarins. Að sögn saksóknara sem er með málið til rannsóknar eiga börnin meðvitað að hafa verið vannærð af umsjónarmönnum heimilanna. Fjölmörgum hefur verið vikið frá störfum, en forsvarsmenn kenna geðræðum vandamálum um ástand barnanna.Tvítug stúlka einungis 11,5 kíló Upp komst um málið þegar fréttamönnum var boðið í heimsókn á eitt heimilanna til að fylgjast með góðgerðarsamkomu til að safna fé fyrir sérstakri fæðu sem ætluð er fyrir vannærð börn. Fréttamönnunum urðu svo fyrir áfalli þegar þeir sáu börnin, en hvít-rússneskir fjölmiðlar segja að tvítug stúlka sem bjó á heimilinu hafi verið 11,5 kíló. Myndirnar af börnunum hafa vakið sterkar tilfinningar í Hvíta-Rússlandi og hefur myndunum verið líkt fyrir myndum úr einangrunarbúðum nasista í lok seinna stríðs.Guardian hefur eftir nokkrum forsvarsmönnum heimila fyrir munaðarlausa í Hvíta-Rússlandi að börnin hafi komið þangað nýfædd og að þau glími við erfið líkamleg og andleg mein sem geri það að verkum að þau geti ekki innbyrt venjulega fæðu. Aðrir hafa einnig kennt fjárskorti og bágum útbúnaði um.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Sjá meira