Leggur Jóhann Berg upp enn eitt markið? │ Myndband Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 12. desember 2017 06:30
Þrír leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Jóhann Berg Guðmundsson verður í eldlínunni með liði sínu Burnley. Landsliðsmaðurinn hefur verið sjóðheitur að undanförnu og lagt upp fimm mörk í deildinni. Hann verður væntanlega á sínum stað í byrjunarliði Burnley þegar Stoke mætir í heimsókn á Turf Moor. Stoke steinlá fyrir Tottenham á laugardaginn og er í bullandi fallbaráttu í deildinni á meðan Burnley hefur átt mjög gott tímabil og er í sjöunda sæti, tveimur stigum frá Liverpool í fjórða sætinu. Botnlið Crystal Palace fær Watford í heimsókn, en Vespurnar hafa verið á þó nokkru flugi og eru í níunda sæti. Palace gerði 2-2 jafntefli við Leicester í síðustu umferð og hefur litið betur út eftir að Roy Hodgson tók við liðinu. Sjónvarpsleikur kvöldsins verður viðureign Huddersfield og Englandsmeistara Chelsea á John Smith's vellinum í Huddersfield. Chelsea tapaði óvænt fyrir West Ham í síðustu umferð og er nú 14 stigum á eftir toppliði Manchester City. Nýliðar Huddersfield fóru frábærlega af stað í deildinni en dalaði gengið aðeins. Þeir unnu hins vegar Brighton í nýliðaslagnum um helgina og eru í 12. sæti.Leikir kvöldsins: 19:45 Burnley - Stoke 20:00 Crystal Palace - Watford 20:00 Huddersfield - Chelsea, beint á Stöð 2 Sport
Enski boltinn Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Handbolti „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Handbolti Danir í sjokki eftir fyrsta tapið á heimavelli í tólf ár Handbolti Fleiri fréttir Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Sjá meira