Biður fyrir því á hverju kvöldi að vinna Meistaradeildina með City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. nóvember 2017 14:00 David Silva. Vísir/Getty
Spánverjinn David Silva hefur spilað með Manchester City í sjö ár eða lengur en hjá nokkru öðru félagi. Hann vill vera þar áfram þrátt fyrir að ekki sé búið að ganga frá nýjum samningi. Þessi 31 árs gamli miðjumaður kom til City frá Valencia árið 2010. Hann hefur unnið sex titla með enska félaginu en vantar enn þann stóra. Hann á eftir að vinna Meistaradeildina. David Silva á átján mánuði eftir af núverandi samningi sínum við Manchester City en hann varð enskur meistari með félaginu 2012 og 2014 auk þess að vinna enska bikarinn 2011 og enska deildabikarinn 2014 og 2016. „Ég bið fyrir því á hverju kvöldi að vinna Meistaradeildina með City,“ sagði David Silva við BBC fyrir Meistaradeildarleik á móti Napoli í kvöld. „Við erum enn að tala saman um nýjan samning. Ég vona að ég geti skrifað undir sem fyrst því ég myndi elska það að vera hér áfram og spila með City í tíu ár,“ sagði David Silva. Manchester City hefur verið í Meistaradeildinni undanfarin sjö tímabil og komst lengst í undanúrslitin vorið 2016. City hefur dottið út úr sextán liða úrslitum þrisvar sinnum á síðustu fjórum árum. David Silva hefur skorað eitt mark og gefið átta stoðsendingar í þrettán leikjum með Manchester City í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni á þessu tímabili.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Sjá meira