Flogalyf talið hafa skaðað þúsundir barna Kjartan Kjartansson skrifar 20. apríl 2017 15:37 Lyfið var meðal annars selt undir markaðsheitinu Depakine. Vísir/Getty
Ný frönsk bráðabirgðarannsókn bendir til þess að lyf sem var gefið ófrískum konum gegn flogaveiki og geðhvörfum hafi valdið alvarlegum vansköpunum í allt að 4.000 börnum. Samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC voru konur sem fengu lyfið valproate allt að fjórum sinnum líklegri en aðrar til að eignast vansköpuð börn samkvæmt niðurstöðum rannsóknar franskrar lyfjaeftirlitsstofnunar. Tengsl lyfsins við fæðingargalla hafa verið þekkt frá 9. áratug síðustu aldar og frönskum læknum er ráðlagt að gefa það ekki stúlkum, konum á barnsburðaraldri eða óléttum konum. Lyfið hefur verið meðal annars verið selt undir markaðsheitunum Epilim, Depakine, Depakote og Stavzor. Það kom fyrst á markað í Frakklandi árið 1967. Franska lyfjaeftirlitsstofnunin hefur komist að þeirri niðurstöðu að 2.150 til 4.100 börn hafi þjáðst af fæðingargöllum af völdum lyfsins. Börnin fæddust meðal annars með ófullvaxinn hrygg og hjarta- og kynfæragalla. Börn kvennanna voru einnig líklegri til að þjást af einhverfu og misþroska. Konur sem fengu lyfið vegna geðhvarfa urðu síður fyrir skaðlegum áhrifum en þær sem fengu það vegna flogaveiki. Ástæðan er talin sú að þær fyrrnefndu fengu minna af lyfinu. Þær voru engu að síður tvisvar sinnum líklegri til að ala börn með fæðingargalla en konur sem ekki fengu lyfið. Framleiðandi lyfsins, Sanofi, hefur ekkert tjáð sig um niðurstöður rannsóknarinnar enn sem komið er. Einhverjir þeirra sem urðu fyrir skaða af völdum lyfsins hafa gagnrýnt fyrirtækið og frönsk stjórnvöld fyrir að hafa varað of seint við aukaverkunum þess.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Sjá meira