Höfðuðu mál gegn nágranna sem málaði húsið sitt röndótt Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar 24. apríl 2017 21:58 Húsið er engu líkt. visir/skjáskot
Nágrannar konu, sem málaði hús sitt röndótt, verða að sætta sig við að hafa líflegt útlit hússins fyrir augunum í náinni framtíð. Nágrannarnir höfðuðu mál gegn konunni vegna sjónmengunar sem þeir töldu stafa frá húsinu en dómarinn taldi ekki ástæðu til þess að krefja konuna um að mála hús sitt einlitt á ný. The Guardian greinir frá. Húsið röndótta er staðsett í hinu dýra Kensington-hverfi í Lundúnum og er andvirði þess talið nema milljónum punda. Eigandi hússins, Zipporah Lisle-Mainwaring, málaði rauðar og hvítar rendur á framhlið hússins í mars 2015, nágrönnum hennar til mikillar mæðu. Ekki er búið í húsinu sem stendur en til stendur að gera það upp. Í réttarsal var aðallega deilt um hvort útlit hússins væri umhverfislýti í skilningi reglugerðar um borgarskipulag. Á lægra dómsstigi hafði niðurstaðan verið sú að húsið væri sjónmegnandi fyrir nágrannana og Lisle-Mainwaring gert að mála það upp á nýtt. Hún ákvað því að áfrýja dómnum. Dómarinn sem dæmdi í málinu taldi að svo væri ekki, hús sem féllu undir ákvæði um umhverfislýti þyrftu að vera niðurnídd eða í slæmu standi. Ákvæðið tæki ekki til ólíkra hugmynda manna um fagurfræði.
Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Sjá meira