Enski boltinn

Sjóðheitur Giroud tryggði Skyttunum sigur á Deepdale | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Olivier Giroud tryggði Arsenal farseðilinn í 4. umferð ensku bikarkeppninnar þegar hann skoraði sigurmarkið gegn Preston á Deepdale. Lokatölur 1-2, Arsenal í vil.

Skytturnar þurftu að hafa mikið fyrir sigrinum og voru undir í hálfleik. Callum Robinson kom Preston yfir strax á 7. mínútu og það reyndist eina markið í fyrri hálfleik.

Aaron Ramsey jafnaði metin með góðu skoti í upphafi seinni hálfleiks og það sem eftir lifði leiks sóttu Skytturnar stíft.

Pressan bar loks árangur á 89. mínútu þegar Giroud kom boltanum í markið eftir sendingu frá Lucas Perez.

Giroud hefur nú skorað í fjórum síðustu leikjum Arsenal en hann hefur verið í miklum ham að undanförnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×