Sami maður skaut á lögreglu norður af París í morgun Kjartan Kjartansson skrifar 18. mars 2017 10:34 Þungvopnaðir sérsveitarmenn frönsku lögreglunnar á Orly-flugvelli í morgun. Vísir/EPA
Maðurinn sem var skotinn til bana á Orly-flugvelli í morgun skaut á lögreglumenn og rændi bíl fyrir utan París fyrr í morgun. Á flugvellinum reyndi maðurinn að grípa byssu hermanns og var í kjölfarið skotinn til bana. Engan annan sakaði. Orly-flugvelli hefur verið lokað eftir uppákomuna í morgun. Flugstöðvarbyggingarnar hafa verið rýmdar og flugvélum sem áttu að lenda þar hefur verið beint annað. Öllum flugferðum til og frá Orly hefur verið aflýst. Sprengjusérfræðingar hafa leitað á flugvellinum en engar sprengjur hafa fundist, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC.AP-fréttastofan hefur eftir Jean-Yves Le Drian, varnarmálaráðherra Frakklands, að maðurinn hafi ráðist á þrjá hermenn sem voru við eftirlit, þar á meðal eina konu. Maðurinn hafi rifið konuna niður og reynt að hrifsa af henni skotvopn en ekki tekist. Félagar hennar hafi skotið manninn til bana til að „verja hana“ og almenning. Rannsókn málsins beinist að því hvort að um tilraun til hryðjuverks hafi verið að ræða. Breska ríkisútvarpið BBC segir á Twitter-síðu sinni að maðurinn hafi verið á hryðjuverkaeftirlitslista. Innanríkisráðherrann Bruno Le Roux segir að maðurinn sem var skotinn til bana sé sá sami og skaut á lögreglumenn norður af París fyrr í morgun, rétt áður en uppákoman á Orly átti sér stað. Þar skaut maður á lögreglumenn með fuglahöglum þegar hann var stöðvaður við umferðareftirlit. Einn lögreglumaður særðist í andliti í árásinni. Árásarmaðurinn flúði af vettvangi og rændi öðrum bíl. Lögreglan segir að sá bíll hafi síðar fundist í nágrenni Orly-flugvallar.
Tengdar fréttir Skotinn til bana á Orly-flugvelli eftir að hafa tekið vopn af hermanni Nokkur svæði á flugvellinum rýmd. 18. mars 2017 08:55 Mest lesið Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Fleiri fréttir Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Sjá meira
Skotinn til bana á Orly-flugvelli eftir að hafa tekið vopn af hermanni Nokkur svæði á flugvellinum rýmd. 18. mars 2017 08:55