Sendi flogaveikum blaðamanni Twitter-skilaboð til að valda flogi Kjartan Kjartansson skrifar 18. mars 2017 17:40 Leiftrandi og blikkandi ljós getur valdið flogi hjá flogaveiku fólki. Vísir/Getty
Flogaveikur blaðamaður Newsweek sem hefur verið gagnrýninn á Donald Trump fékk flog eftir að honum voru send skilaboð með leiftrandi myndum á Twitter gagngert til að valda honum flogi. Karlmaður í Maryland-ríki var handtekinn í gær og sakaður um ofsóknir á netinu. Hann sendi blaðamanninum Kurt Eichenwald skilaboð á Twitter með leiftrandi ljósum og orðunum „þú átt skilið að fá flog fyrir færsluna þína“. Eichenwald fékk flog þegar hann opnaði skilaboðin. Eichenwald hafði skrifað í Newsweek um að hann þjáðist af flogaveiki. Hann rekur árásina til atburða frá því á síðasta ári samkvæmt frétt Washington Post. Eftir að hann birti grein um hagsmunaárekstra Donalds Trump í október segist Eichenwald hafa fengið myndband sent á Twitter en það innihélt leiftrandi ljós, blikkandi hringi og mynd af teiknimyndafígúrunni Pepe froski sem hefur orðið að nokkurs konar tákni hvítra öfgahægrimanna í Bandaríkjunum. Eichenwald taldi að myndbandinu hafi verið ætlað að valda honum flogi en hann náði að forðast það með að kasta spjaldtölvunni sem hann opnaði skilaboðin á í gólfið. Hann fékk sambærileg skilaboð 15. desember sem ollu honum flogi. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna segir að við leit hjá manninum sem var handtekinn hafi fundist aðgangur að skýþjónustu Apple. Á honum hafi fundist skjáskot af Wikipedia-færslu um Eichenwald. Því hafði verið breytt til að sýna að blaðamaðurinn hefði látist 16. desember.
Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Fleiri fréttir Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Sjá meira