Sundáhrifin opnunarmynd RIFF Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 11. ágúst 2016 09:00 Myndin fjallar um Samir sem er staðráðinn í að bæta ráð sitt gagnvart sundkennaranum Agathe sem hann er ástfanginn af þegar ákveðið babb kemur í bátinn. Myndin er tekin upp hér á landi og í Frakklandi.
Kvikmyndin Sundáhrifin eftir leikstjórann Sólveigu Anspach (1960-2015) verður opnunarmynd Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík í ár. Tökur á myndinni fóru fram haustið 2014 og vorið 2015 í Frakklandi og á Íslandi. Á meðan á þeim stóð háði Sólveig baráttu við krabbamein og lést í ágúst árið 2015. Hún lét veikindin ekki aftra sér frá því að klára tökur og eftirvinnslu myndarinnar að mestu leyti. Myndin var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes síðastliðinn maí og þar hlaut hún SACD-verðlaunin fyrir bestu myndina á frönsku í Director’s Fortnight dagskránni. „Við veljum Sundáhrifin af að því okkur finnst Sólveig vera frábær kvikmyndagerðarkona og við höfum sýnt mikið af myndum eftir hana. Þetta er fyrst og fremst skemmtileg og góð mynd. Ég var viðstödd heimsfrumsýninguna úti í Cannes og hún vakti mikla hrifningu gesta í salnum,“ segir Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF. „Það var mikið klappað og mikið hlegið í salnum þannig að við erum mjög áægð með það að velja þessa mynd eftir þessa frábæru listakonu sem opnunarmynd okkar.“ Myndin fjallar um Samir sem er yfir sig ástfanginn af sundkennaranum sínum Agathe og vill bæta ráð sitt gagnvart henni. Hann eltir hana til Íslands en verður fyrir rafstraumi og missir minnið. Hvernig getur hann bætt upp fyrir eitthvað sem hann man ekki eftir og getur sundkennarinn hjálpað honum að endurheimta minnið og um leið ást hans í hennar garð?Didda Jónsdóttir og Frosti Jón Runólfsson eru meðal þeirra sem fara með hlutverk í myndinni.„Það er búið að sýna myndina víða og sala hefur gengið vel í Frakklandi, skilst mér,“ segir Hrönn en Sólveig leikstýrði myndinni og skrifaði handritið ásamt Jean-Luc Gaget. Skúli Malmquist framleiddi myndina fyrir Zik Zak kvikmyndir ásamt Patrick Sobelman sem framleiddi fyrir Ex Nihilo. Í stórum hlutverkum í myndinni eru Didda Jónsdóttir, Frosti Jón Runólfsson, Ingvar E. Sigurðsson og Kristbjörg Kjeld. Með aðalhlutverk fara Florence Loiret Caille og Samir Guesmi. Sólveig leikstýrði á ferlinum fjórtán myndum, bæði heimildarmyndum og leiknum myndum, en hún var heiðruð á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2001 fyrir myndina Made in the USA sem fjallaði um aftöku í Texas. Árið 1999 var Sólveig valin besti leikstjórinn á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Ghent fyrir myndina Haut les Coeurs. Mynd hennar Queen of Montreuil vann áhorfendaverðlaunin á RIFF árið 2012. Sundáhrifin verður sýnd í stóra sal Háskólabíós og segir Hrönn vonir standa til að aðalleikarar myndarinnar komi frá Frakklandi. Hún segir lokavinnu við að setja saman dagskrána nú standa yfir og að hátíðin lofi góðu. „Það má segja að það verði fullt af spennandi myndum og viðburðum. Ég bið bara fólk vinsamlegast að setja sig í bíóstellingarnar,“ segir Hrönn glöð í bragði að lokum. RIFF fer nú fram í þrettánda sinn og stendur yfir dagana 29. september til 9. október. Áhugasamir geta kynnt sér hátíðina betur á vefsíðu hátíðarinnar. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Bíó og sjónvarp Menning RIFF Tengdar fréttir Lokamynd Sólveigar Anspach keppir á Cannes Sólveig náði að klippa stóran hluta myndarinnar áður en hún lést eftir langa baráttu við krabbamein í fyrra. 26. apríl 2016 14:43 Sundáhrifin vann til verðlauna í Cannes Fransk/íslenska gamanmyndin Sundáhrifin er eftir hina heitnu Sólveigu Anspach. 21. maí 2016 12:38 Sólveig Anspach látin Kvikmyndaleikstjórinn Sólveig Anspach er látin 54 ára gömul. 8. ágúst 2015 20:43 Mest lesið „Þú veist þú varst að fara að reykja krakk, er það ekki?“ Lífið Halla fær að koma inn í eldhúsið tvisvar á ári Lífið Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Menning Ástin blómstrar hjá Arndísi Önnu og Lindu Lífið Langskemmtilegast að vera alveg sama Tíska og hönnun Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Menning Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Menning Segir Sinatra hafa verið „risavaxinn“ neðan beltis Lífið Skilaboð frá Höllu á Facebook upphaf að farsælu samstarfi Tíska og hönnun Taka í gegn fjölskylduhús í Eyjum með einstöku útsýni Lífið Fleiri fréttir Sagði „frost í greininni“ og krafði Loga um breytingar Þrýstingur Trump dugði til að fá Rush Hour 4 í gegn Eru þetta bestu gamanmyndir sögunnar? Udo Kier er látinn Helga Margrét tekur við af Króla Framleiða keflvískan krimma sem gerist á hápunkti kalda stríðsins Æstur aðdáandi óð í Grande Hafnar ásökunum um dónamyndir og segir þveröfugt farið Sópa til sín verðlaunum um heim allan Íslenskur Taskmaster kemur í vor Hannes í víking með gamansama glæpamynd Snýr aftur í leiklistina eftir sjö ára fjarveru Urðað yfir nýja þætti Kim: Núll stjörnu glæpur gegn sjónvarpi Sjá meira
Lokamynd Sólveigar Anspach keppir á Cannes Sólveig náði að klippa stóran hluta myndarinnar áður en hún lést eftir langa baráttu við krabbamein í fyrra. 26. apríl 2016 14:43
Sundáhrifin vann til verðlauna í Cannes Fransk/íslenska gamanmyndin Sundáhrifin er eftir hina heitnu Sólveigu Anspach. 21. maí 2016 12:38
Sólveig Anspach látin Kvikmyndaleikstjórinn Sólveig Anspach er látin 54 ára gömul. 8. ágúst 2015 20:43