Margrét Lára með 13 mörk í fjórum leikjum í Reykjavíkurmótinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. febrúar 2016 08:28 Margrét Lára er markahæsti leikmaður íslenska kvennalandsliðsins frá upphafi. vísir/vilhelm
Það er ekki hægt að segja annað en að Margrét Lára Viðarsdóttir fari vel af stað með Val eftir heimkomuna frá Svíþjóð. Landsliðsfyrirliðinn sneri sem kunnugt er heim í haust eftir sjö ára dvöl í atvinnumennsku erlendis og gekk til liðs við Val sem hún lék með áður en hún fór út á sínum tíma. Liðin í Pepsi-deild kvenna eru nú í óða önn að undanbúa sig fyrir átök sumarsins, m.a. með þátttöku í æfingamótum. Valskonur taka þátt í Reykjavíkurmótinu og eru komnar í úrslit þess eftir 9-0 stórsigur á HK/Víkingi í undanúrslitunum í gær. Margrét Lára fór mikinn í leiknum og skoraði hvorki fleiri né færri en fimm mörk. Margrét Lára skoraði tvö fyrstu mörk Vals í leiknum og svo þrjú síðustu mörk liðsins á 15 mínútna kafla í seinni hálfleik. Margrét Lára er því komin með 13 mörk í fjórum leikjum í Reykjavíkurmótinu en hún skoraði átta mörk í riðlakeppninni. Margrét Lára skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Vals á Fjölni, bæði mörkin í 2-0 sigri á KR og fernu í 7-0 sigri á ÍR. Valur hefur unnið alla fjóra leiki sína í Reykjavíkurmótinu með markatölunni 21-0. Í úrslitaleiknum 25. febrúar mæta Margrét Lára og stöllur hennar í Val Fylki sem vann 3-1 sigur á KR í hinum undanúrslitaleiknum í gær.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Enski boltinn Keppir á Steraleikunum en ætlar líka á næstu Ólympíuleika Sport Vilja lífstíðarbann fyrir þjálfara sem tók upp kvenkyns leikmenn í laumi Fótbolti Trump: „Mér er alveg sama hvort Íran tekur þátt í HM“ Fótbolti Saga Elvars er ótrúleg Sport Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Handbolti Gagnrýndi Arsenal fyrir leik liðanna í kvöld Enski boltinn Liverpool setti afar svekkjandi met Enski boltinn Gullit er hættur að horfa á fótbolta Enski boltinn Myndband af Rodrygo að nudda hné Ronaldo fær nýja þýðingu Fótbolti Fleiri fréttir Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Íslensk félög greiddu yfir fimm milljónir í sektir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Viðar tekur slaginn með Selfossi Hallgrímur framlengir við KA „Engar áhyggjur af framtíð liðsins“ Kominn með nóg af flakkinu Víkingur og Breiðablik unnu bæði 1-0 sigra í kvöld Sjá meira