Albert: Barnalegt af okkur Smári Jökull Jónsson skrifar 18. september 2016 18:30 Albert Brynjar í leik með Fylki fyrr í sumar. vísir/anton
Albert Brynjar Ingason framherji Fylkis var niðurlútur eftir jafnteflið gegn Víkingum í Fossvoginum í dag. Hann sagðist vera þreyttur á því að Fylkisliðið fengi á sig mörk í lok leikja sinna. „Þetta er gríðarlega svekkjandi og endurtekin saga frá því fyrr í sumar að fá á sig mark seint. Þetta er barnalegt af okkur að halda ekki stöðunum betur þegar við erum komnir yfir,“ sagði Albert Brynjar í samtali við Vísi eftir leik. „Mér fannst við eiga meira skilið. Mér fannst þeir kannski byrja leikinn betur en svo komum við vel til baka. Svo fannst mér við stjórna leiknum og náum að komast yfir. Eftir það finnst mér við barnalegir. Við erum að vinna boltann hátt á vellinum og tapa svolítið stöðunum í stað þess að halda skipulagi og sigla þessu heim. Við þurftum þrjú stig í dag en í staðinn fáum við mark í andlitið,“ bætti Albert við. Næst eiga Fylkismenn heimaleik gegn botnliði Þróttar og verða Árbæingar hreinlega að taka þrjú stig ætli þeir sér að halda sæti sínu í deildinni. „Það er ekki margt sem við þurfum að laga í okkar leik til þess að stigin fari að detta í hús. Það er fullt sem við getum tekið með okkur héðan í dag. Við verðum að mæta dýrvitlausir í næsta leik og vinna næstu tvo leiki,“ sagði Albert Brynjar að lokum.
Íslenski boltinn Innlendar Íþróttir Pepsi Max-deild karla Mest lesið Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport John Cena hættur að glíma Sport Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Handbolti Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Fótbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Enski boltinn Fleiri fréttir Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina Sjá meira