Innlent

Tíu látnir í umferðinni það sem af er árinu

Sveinn Arnarsson skrifar
Tíu einstaklingar, þar af einn ferðamaður, hafa látið lífið á vegum landsins það sem af er ári.
Tíu einstaklingar, þar af einn ferðamaður, hafa látið lífið á vegum landsins það sem af er ári. Vísir
Tíu einstaklingar, þar af einn ferðamaður, hafa látið lífið á vegum landsins það sem af er ári. Umferð hefur aukist gríðarlega frá hruni með fjölgun ferðamanna sem koma til landsins en á sama tíma á að skera niður fjármagn til uppbyggingar og nýframkvæmda í vegakerfinu.

Runólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB), segir stöðuna orðna graf­alvarlega og hættulega vegfarendum.

Síðastliðinn sunnudag lést ung stúlka í þriggja bíla árekstri á Ólafsfjarðarvegi sunnan Dalvíkur, nánar tiltekið við afleggjarann inn í Skíðadal. Var það tíunda dauðsfallið í umferðinni í jafn mörgum banaslysum en frá árinu 2011 hafa 66 einstaklingar látist í umferðinni.

Þrjú banaslys hafa orðið á suðvesturhorni landsins þar sem umferðin er iðulega mest og flestir íbúar. Einnig hafa þrjú banaslys orðið á Suðurlandi og tvö á Norðurlandi.

Runólfur Ólafsson Framkvæmdastjóri FÍB
Runólfur segir fjármagn skorta til að gera vegina á Íslandi öruggari fyrir vegfarendur. „Við búum við frumstæðasta vegakerfi í Evrópu þar sem hringvegurinn er ekki einu sinni allur klæddur bundnu slitlagi. Á meðan umferð eykst ár frá ári liggur vilji núverandi stjórnvalda til að draga úr fjárframlögum til vegamála. Reyndar átti að spýta nokkuð í á næsta ári, líkast til vegna þess að menn héldu að þeir væru á leið í kosningar á því ári, en það dugar skammt,“ segir Runólfur.

Hann gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir sinnuleysi. „Ráðamenn hafa flotið sofandi að feigðarósi í þessum málum. Við sjáum það núna að samgönguáætlun fyrir 2015 til 2018 liggur enn ósamþykkt á þriðja þingi þeirrar tillögu,“ bætir hann við.

Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, segir mikilvægt að auka fé til vegauppbyggingar.

„Minnihlutinn hefur ekki verið að þvælast fyrir auknu fjármagni í vegamál og vonar að áætlunin verði afgreidd úr nefndinni hið fyrsta. Áætlunin er tilbúin en það virðist vera einhver tregða hjá formanni nefndarinnar, Höskuldi Þórhallssyni, til að afgreiða málið úr nefndinni til þinglegrar meðferðar,“ segir Ásta Guðrún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×