Innlent

Lýsa yfir „gífurlegum vonbrigðum“ í flugvallarmáli

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs er ósátt vegna flugvallarins.
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs er ósátt vegna flugvallarins. vísir/gva
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs tekur undir með stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi sem lýsti í ágúst yfir „gríðarlegum vonbrigðum með þann farveg sem hið opinbera hefur sett málefni innan­landsflugvallar í Reykjavík í“, eins og segir í bókun byggðarráðsins.

„Samhliða þessum afdrifaríku ákvörðunum, hafa yfirvöld ekki lagt fram neina áætlun eða stefnu um það hvernig tryggja eigi öryggi og heilsu íbúa á Austurlandi og um land allt. Það er skýlaus krafa að úr því verði bætt án tafar,“ segir byggðarráð Fljótsdalshéraðs.

Þessi frétt birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×