Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: Vesen í Árbænum | Myndbönd

Baldur Sigurðsson skoraði gegn sínum gömlu félögum.
Baldur Sigurðsson skoraði gegn sínum gömlu félögum. vísir/vilhelm
Fjórða umferð Pepsi-deildar karla 2016 í knattspyrnu kláraðist í gær. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Hvað segir tölfræðin og hver var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttum nótum.

Draumabyrjun Víkings Ó. heldur áfram en þeir unnu ÍA sannfærandi í Vesturlandsslag. Stjörnumenn töpuðu sínum fyrstu stigum en eru samt á toppnum á markatölu. Eyjamenn fóru illa með Hermann Hreiðarsson og lærisveina hans í Fylki og FH-ingar unnu öruggan sigur á Fjölni. Víkingar eru enn án sigurs en Þróttarar svöruðu fyrir skellinn gegn Stjörnunni með 2-0 sigri á Blikum.

Umfjöllun og viðtöl úr öllum sex leikjum umferðarinnar:

Fylkir 0-3 ÍBV

FH 2-0 Fjölnir

Víkingur Ó. 3-0 ÍA

Víkingur R. 2-2 Valur

Þróttur 2-0 Breiðablik

KR 1-1 Stjarnan

Einar Hjörleifsson átti stórleik gegn ÍA.vísir/vilhelm
Góð umferð ...

... Einar Hjörleifsson

Sjóarinn síkáti tók stöðu Cristians Martinez Liberato í Vesturlandsslagnum og átti stórleik. Þessi mikli reynslubolti, sem var búinn að leggja skóna á hilluna, varði í fjórgang vel frá Garðari Gunnlaugssyni, þ.á.m. vítaspyrnu í upphafi seinni hálfleiks. Einar er þekktur vítabani og sýndi enn og aftur snilli sína á því sviði. Það er ekki ónýtt fyrir Ejub Purusevic, þjálfara Víkings, að geta leitað til Einars.

... Gregg Ryder

Englendingsins beið erfitt verkefni að stappa stálinu í sína menn eftir útreiðina sem Þróttarar fengu gegn Stjörnunni í síðustu umferð. Liðið tapaði ekki bara 0-6 heldur ökklabrotnaði aðalsóknarmaður þess, Emil Atlason, í leiknum í Garðabænum. Þrátt fyrir þessi áföll tókst Ryder að blása sínum mönnum baráttuanda í brjóst og Þróttarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu Breiðablik, silfurliðið frá því í fyrra. Lærisveinar Ryders höfðu vissulega heppnina með sér á köflum en þeir lögðu mikið í leikinn og nýttu færin sín. Þróttarar geta vel við unað að vera með fjögur stig eftir gríðarlega erfiða byrjun.

... Eyjamenn

Strákarnir hans Bjarna Jóhannssonar mættu ferskir, svo orð þjálfarans séu notuð, í Árbæinn og hreinlega rúlluðu yfir slaka Fylkismenn. Eyjamenn pressuðu heimamenn stíft og uppskáru mark eftir aðeins þrjár mínútur. Fimm mínútum seinna var staðan orðin 0-2 og leikurinn í raun búinn. ÍBV bætti svo þriðja markinu við í seinni hálfleik. Það var gott jafnvægi og kraftur í Eyjaliðinu í fyrradag, ekki ósvipað og var í leiknum við ÍA í 1. umferðinni. Bjarni er greinilega á réttri leið með liðið.

Svona heilsast menn víst í Eyjum.vísir/anton
Erfið umferð fyrir ...

... Hermann Hreiðarsson

Eyjamanninum baráttuglaða er vandi á höndum eftir fjögur töp Fylkis í fyrstu fjórum umferðunum. Fylkisliðið lítur einfaldlega illa út, bæði í vörn og sókn, og lykilmenn eru fjarri sínu besta. Hermann þarf að finna einhverjar lausnir ef ekki á illa að fara fyrir Fylki í sumar. Þjálfarinn komst svo í fréttirnar fyrir hegðun sína á hliðarlínunni eftir leikinn þar sem hann tók stjórnarmann ÍBV hálstaki. Hermann gerði sjálfur lítið úr atvikinu og sagði að „stundum spjalla menn svona í Eyjum“.

... silfur- og bronsskóinn í fyrra

Handhafar silfur- og bronsskósins í fyrra, Jonathan Glenn og Garðar Gunnlaugsson, áttu erfitt uppdráttar í umferðinni sem leið. Glenn fór illa með nokkur upplögð tækifæri þegar Blikar töpuðu fyrir Þrótti og virðist ryðgaður eftir að hafa misst af fyrstu tveimur leikjum tímabilsins vegna leikbanns. Garðari voru sömuleiðis allar bjargir bannaðar í Ólafsvík en Einar Hjörleifsson varði fjórum sinnum vel frá Skagamanninum. Glenn og Garðar hafa verið kaldir í byrjun móts og þurfa að gera betur ef lið þeirra ætla að komast á flug.

... Blika

Lærisveinar Arnars Grétarssonar töpuðu aftur fyrir nýliðum þegar þeir sóttu Þrótt heim í Laugardalinn í gær. Blikar fengu nóg af færum í leiknum en nýttu þau ekki og klikkuðu tvisvar í vörninni. Þá fékk fyrirliði Breiðabliks, Arnór Sveinn Aðalsteinsson, rauða spjaldið í fyrri hálfleik. Blikar eru þegar búnir að tapa tveimur leikjum í sumar, jafnmörgum og þeir gerðu allt tímabilið í fyrra. Uppskeran eftir fyrstu fjórar umferðirnar, sex stig, er þó sú sama og í fyrra en Blikar þurfa að gera betur ætli þeir sér að taka þátt í toppbaráttunni í sumar.

Kristinn Freyr Sigurðsson skoraði á Víkingsvelli annað árið í röð.vísir/vilhelm
Tölfræðin og sagan:

*Fylkir er sjötta félagið sem fer stigalaust í gegnum fjóra fyrstu leikina síðan að deildin innihélt fyrst tólf liða deild 2008.

*0 stig og -8 í markatölu er versta frammistaða liðs í Pepsi-deildinni í fyrstu fjórum umferðunum síðan að Grindavík náði samskonar árangri sumarið 2010.

*Eyjamenn eru með jafnmörg stig eftir fyrstu fjóra leikina í ár (7) og þeir voru með á tveimur síðustu tímabilum Bjarna Jóhannssonar með liðið, 1998 og 1999.

*Atli Guðnason hefur átt þátt í 9 af 12 mörkum FH (4 mörk, 5 stoðsendingar) í fimm síðustu deildarleikjum liðsins á móti Fjölni.

*FH-ingar eru búnir að skora í 27 deildarleikjum í röð í Kaplakrika.

*Fjölnismenn hafa verið undir í 160 mínútur í síðustu tveimur leikjum sínum í Pepsi-deildinni eftir að hafa ekki verið undir í eina einustu mínútu í fyrstu tveimur leikjum sínum í sumar.

*Ólafsvíkingar hafa skorað jafnmörk mörk á Ólafsvíkurvelli í fyrstu tveimur leikjum sínum í ár (5) og þeir skoruðu í öllum ellefu heimaleikjum sínum sumarið 2013.

*Skagamenn hafa nú tapað sex leikjum í röð í Pepsi-deildinni á móti nýliðum þegar þeir sjálfir eru ekki nýliðar.

*Skagamenn hafa fallið úr deildinni í síðustu tvö skipti (2008, 2013) sem liðið hefur ekki náð að fagna sigri í fyrstu þremur útileikjum sínum.

*Víkingar eru í fyrsta sinn í fallsæti síðan að þeir töpuðu fyrir Fjölni í 1. umferðinni 2014.

*Þriðja árið í röð sem Víkingur og Valur gera jafntefli í Fossvoginum og annað árið í röð sem Víkingar jafna.

*Fyrsta sinn í þrjú ár sem Haukur Páll Sigurðsson skorar tveimur deildarleikjum í röð eða síðan að hann skoraði í tveimur fyrstu umferðunum 2013.

*Markatala Þróttara í tveimur síðustu leikjum sínum á móti Breiðabliki í efstu deild er +6 (6-0).

*Blikar náðu í 10 stig af 12 mögulegum á móti nýliðunum í fyrra en geta nú í mesta lagi náð 6 stigum á móti nýliðunum í ár.

*6 af 9 deildarmörkum Dion Acoff fyrir Þróttara í Pepsi-deild (2) og 1. deild (4) hafa komið á Þróttaravellinum í Laugardal.

*Fyrsta mark Indriða Sigurðssonar í efstu deild á Íslandi og það kom í hans 29. deildarleik fyrir KR.

*Stjörnuliðið var búið að skora 9 mörk í röð án þess að mótherjar þeirra höfðu náð að svara fyrir sig þegar Indriði Sigurðsson jafnaði fyrir KR.

*Á tveimur síðustu tímabilum sem KR-liðið hefur ekki tapað í fyrstu fjórum leikjunum sínum hefur KR orðið Íslandsmeistari um haustið (2011 og 2013).

Steven Lennon skoraði seinna mark FH í sigrinum á Fjölni.vísir/vilhelm
Skemmtilegir punktar úr Boltavaktinni:

Kolbeinn Tumi Daðason á Alvogen-vellinum:

„Yfirferðin á Sigga Dúllu, liðsstjóra Stjörnunnar, er mikil. Eina mínútuna er hann með keilu í hönd, þá næstu grýtir hann boltum til Garðbæinga. Stjarnan væri ekkert án Dúllunnar, það er bara þannig.“

Ingvi Þór Sæmundsson á Ólafsvíkurvelli:

„Ertu að dæma í fyrsta skipti?!“ gargar einhver snillingur úr stúkunni. Gunnar er reyndar að dæma sinn fyrsta leik í efstu deild í kvöld svo ég svari spurningunni.“

Smári Jökull Jónsson í Kaplakrika:

„Ágúst Gylfason þjálfari Fjölnis ekki ánægður hér á hliðarlínunni. Ívar flautaði aukaspyrnu sem allir héldu að Fjölnismenn væru að fá. En þá var dæmt brot á gestina. Ég viðurkenni að ég veit ekki alveg hvernig Ívar Orri fékk þetta út.“

Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:

Haukur Páll Sigurðsson, Val 8

Einar Hjörleifsson, Víkingi Ó. 8

William Dominguez da Silva, Víkingi Ó. 8

Pablo Punyed, ÍBV 8

Mikkel Maigaard, ÍBV 8

Dion Jeremy Acoff, Þrótti 8

Trausti Sigurbjörnsson, Þrótti 8

Víðir Þorvarðarson, Fylki 2

Ragnar Bragi Sveinsson, Fylki 2

Umræðan á #pepsi365

Mark 4. umferðar Atvik 4. umferðar Markasyrpa 4. umferðar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×