Í dag klukkan fjögur var opnaður markaður á staðnum þar sem finna má ódýr föt og alls kyns muni sem gefnir hafa verið til styrktar þeim. Markaðurinn er opinn til klukkan átta í kvöld en það er móðir Halldórs Ragnarssonar, myndlistarmanns, sem heldur utan um þann hluta.

Húsið opnar svo aftur hálftíma síðar, eða kl.20:30, fyrir tónleika þar sem hljómsveitirnar Seabear, Mammút, Singapore Sling og Serengeti koma fram en liðsmenn sveitanna hafa allar einhver tengsl til íbúana þriggja.
Sjálfur plokkaði Dóri (eins og hann er kallaður) bassann í Seabear og eru margir spenntir að sjá hvort hann stígi á svið með sveitinni í kvöld. Sveitin lagði upp laupana fyrir nokkrum árum síðan eftir að forsprakki hennar hóf sólóferil sinn undir nafninu Sin Fang.
Halldór missti bassagítarinn sinn í brunanum og hafði víst ekki leikið á hann frá því að sveitin lagði upp laupanna á sínum tíma.
Miðaverð á tónleikana er 2000 kr.